Frétt

Ársfundur 2023

Ársfundur 2023

Ársfundur Frjálsa verður haldinn miðvikudaginn 31. maí 2023 kl. 17:15 í höfuðstöðvum Arion banka, Borgartúni 19.

Allir sjóðfélagar eru velkomnir á fundinn. Kosning til stjórnar og atkvæðagreiðslur um tillögur á ársfundinum fara eingöngu fram með rafrænum hætti. Sjóðfélagar sem ekki mæta á fundinn geta fylgst með fundinum í gegnum vefstreymi og tekið þátt í rafrænum atkvæðagreiðslum um tillögur fundarins.

Rafræn kosning til stjórnar hefst kl. 17:00 miðvikudaginn 24. maí 2023 og stendur yfir til kl. 17:00 á ársfundardegi miðvikudaginn 31. maí 2023.

Nánari upplýsingar um fundinn og skráning á hann fer fram hér.