Frétt

Starfsemi Frjálsa árið 2022

Starfsemi Frjálsa árið 2022

Metfjöldi greiðandi sjóðfélaga

 
Rekstur Frjálsa gekk heilt yfir vel á árinu 2022 þrátt fyrir mjög krefjandi aðstæður á fjármálamörkuðum. Ársreikningur sjóðsins fyrir árið 2022 liggur nú fyrir og eru helstu niðurstöður hans eftirfarandi:

  • Hrein eign Frjálsa nam 400,5 milljörðum kr. á bókfærðu virði og minnkaði sjóðurinn um 1,9 milljarða kr. eða um 0,5%. Hrein eign séreignardeildar var 269,9 milljarðar kr. og hrein eign tryggingadeildar var 130,6 milljarðar kr.
  • Heildariðgjöld voru 26,7 milljarðar kr. og hafa aldrei verið hærri en hækkunin nam um 13% á milli ára.
  • Metfjöldi sjóðfélaga greiddi iðgjöld í sjóðinn á árinu, þ.e. 24.880. Fjöldi sjóðfélaga sem átti séreign eða réttindi í lok árs var 67.051.
  • Lífeyrisgreiðslur hækkuðu um 23,8% milli ára og námu 6,5 milljörðum kr. Lífeyrisþegar voru 6.281. Greiddar voru 199,8 milljónir fyrirfram úr viðbótarsparnaði til 110 sjóðfélaga vegna heimsfaraldurs. Auk þess voru greiddir 1,2 milljarðar kr. af viðbótarsparnaði inn á höfuðstól lána eða til öflunar íbúðarhúsnæðis.
  • Afgreidd voru 365 lán til sjóðfélaga að fjárhæð 10,4 milljarðar kr. Af nýjum lánum voru 59% óverðtryggð og 41% verðtryggð.
  • Árið 2022 var eitt mest krefjandi ár á fjármálamörkuðum frá fyrri hluta síðustu aldar þar sem nær allir markaðir lækkuðu umtalsvert. Hreinar fjárfestingartekjur sjóðsins námu -19,9 milljörðum. Nafnávöxtun fjárfestingarleiða sjóðsins var á bilinu -11,2% til 0,7% og fimm ára meðaltal nafnávöxtunar var 5,7% til 8,5%. Raunávöxtun fjárfestingarleiða sjóðsins var á bilinu -18,8% til -7,9% en fimm ára meðaltal raunávöxtunar var 1,0% til 3,5%.
  • Kostnaðarhlutfall sjóðsins þ.e. hlutfall rekstrarkostnaðar og beinna fjárfestingargjalda af meðalstöðu hreinnar eignar á markaðsvirði hefur lækkað undanfarin ár og var á árinu 0,22%. Hlutfallið lækkaði um 0,02 prósentustig á milli ára.
  • Við mat á tryggingafræðilegri stöðu tryggingadeildar sjóðsins er stuðst við spá um lífslíkur mismunandi árganga. Þannig er gert ráð fyrir því að lífslíkur fari vaxandi með hækkandi fæðingarári. Tryggingafræðileg staða Frjálsa lífeyrissjóðsins er innan lagalegra marka. Núvirtar eignir tryggingadeildar umfram áunnar skuldbindingar voru -10,4% (áfallin skuldbinding) og núvirt framtíðariðgjöld umfram núvirtar framtíðarskuldbindingar voru 1,2% (framtíðarskuldbinding). Núvirtar eignir og framtíðariðgjöld umfram heildarskuldbindingar voru í árslok 2022 -4,4% (heildarskuldbinding).

Nánari upplýsingar um ársuppgjörið er að finna í ársreikningnum.

Lykilupplýsingar hafa nú verið uppfærðar á vefsíðu sjóðsins til samræmis við upplýsingar í ársreikningi.