Frétt

Áherslur fjárfestingarstefnu Frjálsa 2023

Áherslur fjárfestingarstefnu Frjálsa 2023

Stjórn Frjálsa hefur mótað fjárfestingarstefnu fyrir árið 2023 og er hana að finna hér. Síðustu ár hefur áhersla verið lögð á að auka hlutfall og dreifingu erlendra eigna. Samhliða hefur verið dregið úr vægi innlendra eigna. Í fjárfestingarstefnu fyrir árið 2023 er haldið áfram á þessari vegferð en samantekið eru helstu breytingar þær að vægi erlendra eigna er aukið og dregið er úr vægi innlendra skuldabréfa og hlutabréfa.

Tryggingadeild

Fjárfestingarstefna tryggingadeildar hefur verið heldur aðhaldssöm í gegnum árin með það að markmiði að lágmarka sveiflur í ávöxtun og líkur á að skerða þurfi réttindi sjóðfélaga. Við mótun stefnu tryggingadeildar hefur jafnframt verið litið til þess að skylduiðgjöldum sjóðfélaga er skipt í tryggingadeild og séreignadeild og geta sjóðfélagar sjálfir valið sér fjárfestingarleið og þar með áhættustig þess hluta iðgjaldsins sem rennur í séreign. Breytingar á stefnunni í ár eru gerðar til þess halda áfram á vegferð síðustu ára að auka við erlendar fjárfestingar. Markmið um hlutfall eignaflokka hjá tryggingadeild breytast eins og hér segir:

  • Innlend skuldabréf lækka úr 53% í 50%
  • Innlend skráð hlutabréf lækka úr 13% í 12%
  • Erlend hlutabréf hækka úr 22% í 23%
  • Erlendar sérhæfðar fjárfestingar hækka úr 7% í 10%

Frjálsi áhætta

Undanfarin ár hefur fjárfestingarleiðin Frjálsi áhætta stækkað töluvert. Jafnframt hefur verið skerpt nokkuð á áhættu leiðarinnar til að aðgreina hana frekar frá öðrum fjárfestingarleiðum sjóðsins. Fjárfestingu í hlutabréfum og hlutabréfatengdum afurðum fylgir almennt meiri sveiflur í ávöxtun en í skuldabréfum. Að sama skapi er vænt langtímaávöxtun þeirra hærri. Í ár helst fjárfestingarstefna Frjálsa áhættu óbreytt á milli ára.

Markmið um hlutfall eignaflokka hjá Frjálsa áhættu eru því eins og hér segir:

  • Innlend skuldabréf óbreytt í 28%
  • Innlend skráð óbreytt í 25%
  • Erlend hlutabréf óbreytt í 40%
  • Erlend skuldabréf óbreytt í 1%
  • Erlendar sérhæfðar fjárfestingar óbreytt í 6%

Fjárfestingarleiðir ævilínu – Frjálsi 1, 2 og 3

Markmið um hlutfall eignaflokka hjá fjárfestingarleiðum ævilínu breytast eins og hér segir:

  • Erlendar eignir Frjálsa 1 hækka úr 42% í 44% og Frjálsa 2 úr 21% í 23%
  • Innlend skuldabréf hjá Frjálsa 1 lækka úr 38% í 37% og hjá Frjálsa 2 úr 69% í 68%
  • Innlend hlutabréf hjá Frjálsa 1 lækka úr 20% í 19% og hjá Frjálsa 2 úr 10% í 9% en hækkunin tekur óskipt til skráðra verðbréfa hjá báðum leiðum

Eignir í Frjálsa 3 eru einungis byggðar upp á innlendum skuldabréfum og innlánum. Í fjárfestingarstefnu 2023 eru helstu breytingar þær að vægi fasteignaveðtryggðra skuldabréfa hækkar úr 15% í 16% og skuldabréfa sveitarfélaga hækkar úr 9% í 10%. Á móti er dregið úr vægi ríkisskuldabréfa úr 17% í 15%.

Á eftirfarandi mynd má sjá markmið um eignasamsetningu hverrar leiðar fyrir sig. Þó er heimilt að nýta vikmörk í fjár¬festingarstefnu með því að undir- eða yfirvigta einstaka eignaflokka til að nýta tækifæri á mörkuðum og/eða til að draga úr áhættu.