Frétt

Breyting á vöxtum sjóðfélagalána

Breyting á vöxtum sjóðfélagalána

Vextir óverðtryggðra lána hækka úr 4,79% í 5,0% og tekur vaxtabreytingin gildi mánudaginn 31. janúar nk.

Vextir verðtryggðra lána með breytilegum vöxtum, sem eru endurskoðaðir ársfjórðungslega, lækka úr 1,50% í 1,40% og tekur vaxtabreytingin gildi 15. febrúar nk.

Eftir vaxtabreytinguna verða vextir lána Frjálsa eftirfarandi:

  • Verðtryggð lán með breytilegum vöxtum, 1,40%
  • Verðtryggð lán með föstum vöxtum út lánstímann, 2,65%
  • Óverðtryggð lán með föstum vöxtum til þriggja ára í senn, 5,0%

Nánari upplýsingar um lán sjóðsins er að finna hér.