Frétt

Frjálsi tekur þátt í samstarfi norrænna og breskra lífeyrissjóða um umhverfisvænar fjárfestingar

Frjálsi tekur þátt í samstarfi norrænna og breskra lífeyrissjóða um umhverfisvænar fjárfestingar

Frjálsi lífeyrissjóðurinn er einn af þrettán íslenskum lífeyrissjóðum sem hyggjast ráðstafa samtals 4,5 milljörðum Bandaríkjadala (um 580 milljarða króna) í fjárfestingar sem tengjast hreinni orku og öðrum umhverfisvænum lausnum fram til ársins 2030.

Sjóðirnir hafa skrifað undir viljayfirlýsingu þess efnis í samstarfi við alþjóðlegu samtökin Climate Investment Coalition en yfirlýsingin var formlega kynnt í morgun á loftlagsráðstefnu Sameinuðu þjóðanna, COP26, sem fram fer í Glasgow í Skotlandi. Auk íslensku sjóðanna hafa fjölmargir aðrir norrænir sjóðir gefið út svipaðar yfirlýsingar síðastliðin tvö ár. Með undirritun viljayfirlýsingar staðfesta íslensku lífeyrissjóðirnir vilja sinn til að vera virkir þátttakendur í að auka hlut grænna fjárfestinga og að vinna að því markmiði að minnka losun gróðurhúsalofttegunda til samræmis við ákvæði Parísarsáttmálans.

Sjóðirnir munu meðal annars horfa til fjárfestingakosta sem nýta jarðvarma en einnig er stefnan að styðja við aukna notkun annarra sjálfbærra orkugjafa með það að markmiði að stuðla að aukinni notkun hreinnar orku í samgöngum og atvinnustarfsemi. Sjóðirnir sem taka þátt í verkefninu eru auk Frjálsa, Almenni lífeyrissjóðurinn, Birta lífeyrissjóður, Brú lífeyrissjóður, Festa lífeyrissjóður, Gildi-lífeyrissjóður, Lífeyrissjóður bankamanna, Lífeyrissjóður verzlunarmanna, Lífsverk, LSR, Lífeyrissjóður starfsmanna Reykjavíkurborgar, SL lífeyrissjóður og Stapi lífeyrissjóður.

Um Climate Investment Coalition

Climate Investment Coalition (CIC) eru alþjóðleg samtök en stofnaðilar eru danska umhverfis-, orku og veituráðuneytið, The Institutional Investors Group on Climate Change, Insurance & Pension Denmark (samtök 92 tryggingafélaga og lífeyrissjóða í Danmörku) og World Climate Foundation (samtök sem vinna að orkuskiptum og framþróun lágkolefnishagkerfisins). Markmið CIC er að stuðla að aukinni fjárfestingu í hreinni orku og öðrum umhverfislausnum, svo sem nýtingu jarðhita, vindorku, sólarorku, bættrar orkunýtingar í byggingum og bættri tækni við flutning raforku. Fyrsta skrefið í þá átt var skuldbinding danskra lífeyrissjóða árið 2019 til að fjárfesta fyrir um 50 milljarða Bandaríkjadala (6.500 milljarða kr.) í grænum lausnum fram til ársins 2030.

Fréttatilkynning á vef Landssamtaka lífeyrissjóða