Frétt

Frjálsi er kominn í Arion appið

Frjálsi er kominn í Arion appið

Sjóðfélögum Frjálsa býðst nú einstök yfirsýn yfir lífeyrissparnað sinn en þeir geta nálgast upplýsingar um hann með einföldum og aðgengilegum hætti í Arion appinu.

Arion appið er opið öllum og því geta sjóðfélagar Frjálsa fylgst með lífeyrissparnaði sínum án þess að vera í bankaviðskiptum við Arion banka. Allir notendur appsins geta sótt um viðbótarsparnað og skyldusparnað í Frjálsa.

Þetta og meira til geta sjóðfélagar Frjálsa séð í Arion appinu:

  • núverandi stöðu séreignar
  • ávöxtun og þróun séreignar frá upphafi
  • áætlaða séreign við starfslok og mánaðarlega útgreiðslu
  • áunnin og áætluð eftirlaunaréttindi í samtryggingu við starfslok
  • yfirlit yfir lán og hægt er að greiða inn á það
  • ráðstöfun viðbótarsparnaðar inn á húsnæðislán og hvort greiðslur séu virkar
  • ráðstöfun viðbótarsparnaðar til húsnæðiskaupa

Sækja Arion appið fyrir iOSSækja Arion appið fyrir Android