Frétt

Fræðslufundur um Frjálsa lífeyrissjóðinn

Fræðslufundur um Frjálsa lífeyrissjóðinn

Á fundinum segir Arnaldur Loftsson, framkvæmdastjóri Frjálsa lífeyrissjóðsins, frá uppbyggingu, ávöxtun og þjónustu við sjóðfélaga.

Sérstaklega verður fjallað um þá þætti sem veita sjóðnum sérstöðu, s.s. séreignarmyndun og erfanleika.

Fundurinn verður haldinn í Arion banka, Borgartúni 19, þriðjudaginn 30. september kl. 17:30. Fundurinn stendur yfir í rúmlega klukkustund og eru kaffiveitingar í boði.

Allir velkomnir.

Skráning á fræðslufundinn