Frétt

Niðurstaða ársfundar Frjálsa lífeyrissjóðsins

Niðurstaða ársfundar Frjálsa lífeyrissjóðsins

Ársfundur Frjálsa lífeyrissjóðsins var haldinn í gær, 29. apríl. Á fundinum var m.a. kynntur ársreikningur sjóðsins fyrir árið 2013 þar sem fram kom m.a. að fjárfestingarleiðir sjóðsins hefðu skilað 4,2-12,6% nafnávöxtun en tryggingadeildin 9,2% nafnávöxtun. Hrein eign sjóðsins var um 132 milljarðar kr. í lok árs og stækkaði sjóðurinn um 13% á árinu. 

Kosning stjórnarmanna

Á fundinum var kosið um tvo stjórnarmenn til tveggja ára. Réttkjörin voru þau Ásgeir Thoroddsen og Anna Sigríður Halldórsdóttir. Tveir skiluðu inn framboðum í varastjórn og eru því sjálfkjörnir, þau Selma Svavarsdóttir og Tryggvi Þór Herbertsson.

Tillögur um breytingar á samþykktum

Tillögur stjórnar um breytingar á samþykktum sjóðsins voru samþykktar samhljóða, sjá skjal hér að neðan.

Stjórnarlaun

Samþykkt var að mánaðarlaun stjórnarmanna yrðu óbreytt, 97.500 kr. og tvöföld til stjórnarformanns. 

Deloitte endurskoðandi sjóðsins

Samþykkt var tillaga stjórnar um að Deloitte ehf. yrði endurskoðandi sjóðsins. 

Fundargerð ársfundar verður birt á vefnum innan fárra daga.

Samþykktar breytingartillögur á ársfundi 2014