Frétt

Rekstur sjóðsins gekk vel á árinu 2013

Rekstur sjóðsins gekk vel á árinu 2013

  • Nafnávöxtun fjárfestingarleiða séreignardeildar sjóðsins var á bilinu 4,2-12,6% árið 2013 og 5 ára meðalnafnávöxtun 8,7-12,4%. Nánari upplýsingar um ávöxtun sjóðsins er að finna hér.
  • Nafnávöxtun tryggingadeildar var 9,2% árið 2013 og 5 ára meðalnafnávöxtun sú sama eða 9,2%. Skuldabréf tryggingadeildar eru gerð upp á kaupkröfu en skuldabréf séreignardeildar eru gerð upp á markaðsvirði. 
  • Tryggingafræðilega staða samtryggingarsjóðs batnaði um 0,5 prósentustig á árinu og eru bæði áunnin staða og heildarstaða jákvæð í fyrsta sinn frá árinu 2007. Í lok árs 2013 var hlutfall eigna 0,8% umfram áfallnar skuldbindingar og 0,2% umfram heildarskuldbindingar.
  • Hrein eign til greiðslu lífeyris nam um 132 milljörðum í árslok samanborið við 117 milljarða árið 2012 og stækkaði sjóðurinn um 13% á milli ára. Stærð séreignadeildar var um 97 milljarðar og stærð tryggingadeildar um 35 milljarðar. 
  • Iðgjöld sjóðfélaga og launagreiðenda námu 8,9 milljörðum samanborið við 7,7 milljarða árið áður og jukust um 15%. Lágmarksiðgjöld voru 7,5 milljarðar og viðbótariðgjöld 1,4 milljarðar. 
  • Lífeyrisgreiðslur úr séreignadeild og tryggingadeild voru 1,8 milljarðar en 1,6 milljarðar árið áður og hækkuðu um 12%. Fyrirframútgreiðslur á séreignarsparnaði námu 630 milljónum en rúmlega 1 milljarði árið áður og lækkuðu um 40%.
  • Heildarfjöldi sjóðfélaga í árslok var um 48 þúsund og fjölgaði þeim um 2.057 á árinu eða 4%. Fjöldi sjóðfélaga sem valdi að greiða í sjóðinn var 17.785 og fjölgaði þeim um 449 á árinu eða 3%.