Frétt

Breyting á lögum um útgreiðslu lífeyris

Breyting á lögum um útgreiðslu lífeyris

Í janúar sl. varð breyting á lögum um almannatryggingar sem hafa áhrif á umsóknir um lífeyri hjá lífeyrissjóðum. Ákvæðið felur í sér að sjóðfélagar þurfa að sækja um lífeyri fyrst hjá lífeyrissjóðum áður en þeir sækja um lífeyri hjá Tryggingastofnun. Þetta þýðir að ef sjóðfélagi í Frjálsa lífeyrissjóðnum velur að sækja um lífeyri frá Tryggingastofnun 67 ára þá verður hann að sækja um lífeyri úr Frjálsa lífeyrissjóðnum og öðrum sjóðum, ef við á, frá sama tíma. Þetta gildir einnig um útgreiðslur úr Frjálsu leiðinni og Erfanlegu leiðinni þar sem viðmiðunaraldur er 70 ára en í þeim tilvikum verður sjóðfélagi að flýta töku lífeyris sem þýðir að lífeyrisgreiðslur lækka m.v. áunnin réttindi sjóðfélaga við 70 ára aldur. 

Rökin fyrir breytingunum eru að ekki er talið réttmætt að sjóðfélagar geti fengið hærri greiðslur frá Tryggingastofnun eingöngu með því að fresta því að sæka um áunnin lífeyrisréttindi hjá lífeyrissjóðum. Kjósi sjóðfélagar aftur á móti að seinka töku lífeyris þarf það vera gagnvart báðum meginstoðum lífeyriskerfisins á sama tíma. 

Staðfestingu á umsókn er hægt að fá í næsta útibúi Arion banka.