Frétt

Niðurstaða ársfundar Frjálsa lífeyrissjóðsins

Niðurstaða ársfundar Frjálsa lífeyrissjóðsins

Ársfundur Frjálsa lífeyrissjóðsins var haldinn 24. apríl sl. Á fundinum var m.a. kynntur ársreikningur sjóðsins fyrir árið 2012 þar sem fram kom að fjárfestingarleiðir sjóðsins hefðu skilað 5,4%-14,1% nafnávöxtun en tryggingadeildin 10,5% nafnávöxtun. Hrein eign sjóðsins var um 116,6 milljarðar kr. í lok árs og stækkaði sjóðurinn um 17% á árinu.

Kosning stjórnarmanna

Á fundinum var kosið um tvo stjórnarmenn til tveggja ára. Réttkjörin voru þau Ásdís Eva Hannesdóttir og Magnús Pálmi Skúlason. Einnig var kosið um tvo varamenn til eins árs. Réttkjörnar voru þær Anna Sigríður Halldórsdóttir og Selma Svavarsdóttir.

Tillögur um breytingar á samþykktum

Tillögur stjórnar um breytingar á samþykktum sjóðsins voru samþykktar samhljóða.

Stjórnarlaun

Samþykkt var að mánaðarlaun stjórnarmanna yrðu 97.500 kr. og tvöföld til stjórnarformanns.

Deloitte endurskoðandi sjóðsins

Samþykkt var tillaga stjórnar um að Deloitte yrði endurskoðandi sjóðsins.

Fundargerð ársfundar verður birt á vefnum innan fárra daga.