Frétt

Ársuppgjör Frjálsa lífeyrissjóðsins

Ársuppgjör Frjálsa lífeyrissjóðsins

Ársuppgjör Frjálsa lífeyrissjóðsins fyrir árið 2012 liggur nú fyrir.

  • Nafnávöxtun fjárfestingarleiða séreignardeildar sjóðsins var á bilinu 5,4-14,1% árið 2012 og 5 ára meðalnafnávöxtun 8,1-12,5%. Nánari upplýsingar um ávöxtun sjóðsins er að finna hér
  • Nafnávöxtun tryggingadeildar var 10,5% árið 2012 og 5 ára meðalnafnávöxtun 5,6%. Skuldabréf tryggingadeildar eru gerð upp á kaupkröfu en skuldabréf séreignardeildar eru gerð upp á markaðsvirði.
  • Tryggingafræðileg staða tryggingadeildar sjóðsins batnaði um 0,1 prósentustig á milli ára og var í lok árs -0,3% samanborið við - 0,4% í lok ársins 2011. Á árinu 2012 voru gefnar út nýjar töflur um lífslíkur sem gera ráð fyrir lengri meðalævi en áður og hækkuðu þar með skuldbindingar sjóðsins um 1,5% og höfðu neikvæð áhrif á tryggingafræðilega stöðu. Þess má geta að ef nýjar töflur um lífslíkur hefðu ekki tekið gildi hefði sjóðurinn verið með jákvæða tryggingafræðilega stöðu.
  • Hrein eign til greiðslu lífeyris nam um 116,7 milljörðum í árslok samanborið við 99,7 milljarða árið 2011 og stækkaði sjóðurinn um 17% á milli ára. Stærð séreignadeildar var um 87,5 milljarðar og stærð tryggingadeildar um 29 milljarðar.
  • Iðgjöld sjóðfélaga og launagreiðenda námu 7,7 milljörðum samanborið við 6,8 milljarða árið áður og jukust um 14,1%. Lágmarksiðgjöld voru 6,4 milljarðar og viðbótariðgjöld 1,3 milljarðar.
  • Lífeyrisgreiðslur úr séreignadeild og tryggingadeild voru 2,7 milljarðar en 3,6 milljarðar árið áður og lækkuðu um 25%. Skýringin á þessari miklu lækkun eru lægri útgreiðslur á þeirri fjárhæð sem sjóðfélagar geta tekið út fyrirfram úr séreignarsparnaði.
  • Heildarfjöldi sjóðfélaga í árslok var 45.926 og fjölgaði þeim um 3.202 á árinu. Fjöldi sjóðfélaga sem greiddi í sjóðinn var 17.336 og fjölgaði þeim um 1.818 á árinu.

Upplýsingar um meginniðurstöður ársreiknings er að finna í neðangreindri auglýsingu:

Auglýsing


Ársfundur sjóðsins verður haldinn 24. apríl nk. kl. 17:15 í höfuðstöðvum Arion banka, Borgartúni 19.