Frétt

Fræðslufundur um útgreiðslur úr lífeyrissparnaði

Fræðslufundur um útgreiðslur úr lífeyrissparnaði

Fræðslufundur um útgreiðslur úr lífeyrissparnaði verður þriðjudaginn 27. nóvember kl. 17:30 í Arion banka, Borgartúni 19.

Eftir 55 ára aldur styttist í að einstaklingar geti hafið töku á lífeyrissparnaði sínum. Á fundinum verður fjallað um ýmis atriði sem mikilvægt er að huga að við töku lífeyrissparnaðar: 

  • Reglur um útgreiðslur lífeyrissparnaðar 
  • Skattalega meðferð lífeyrissparnaðar 
  • Samspil útgreiðslna úr lífeyrissjóðum og Tryggingastofnun 
Fyrirlesarar eru Arnaldur Loftsson, framkvæmdastjóri Frjálsa lífeyrissjóðsins og Inga Tinna Sigurðardóttir, sérfræðingur hjá Arion banka. Fundurinn stendur yfir í rúmlega klukkustund. 

Léttar veitingar í boði og allir velkomnir.

Skráning