Frambjóðendur
Samkvæmt samþykktum Frjálsa skal stjórn sjóðsins skipuð sjö sjóðfélögum og þremur til vara, kosnum af sjóðfélögum. Frambjóðandi til aðalstjórnar getur einnig gefið kost á sér til varastjórnar. Nái hann kjöri sem aðalmaður fellur framboðið til varastjórnar niður. Nái hann kjöri sem aðalmaður tekur hann ekki sæti sem varamaður.
Á þessum ársfundi rennur út kjörtímabil Önnu Sigríðar Halldórsdóttur og Björns Inga Victorssonar í aðalstjórn og Lilju Bjarnadóttur í varastjórn.
Í ljósi samsetningar þeirra stjórnarmanna sem sitja áfram í stjórn er ljóst að í tilfelli aðalmanna til stjórnar skal kjósa amk. eina konu. Í tilfelli varamanna skal kjósa eina konu.
Upplýsingar um frambjóðendur í stjórn munu birtast hér þegar nær dregur ársfundi.
Framboð til stjórnar þarf að liggja fyrir eigi síðar en 14 dögum fyrir ársfund, þ.e. fyrir kl. 17:15 þann 20. maí 2026. Senda skal tilkynningu um framboð á þar til gerðu eyðublaði sjóðsins sem finna má hér fyrir neðan auk nauðsynlegra fylgigagna á netfangið arsfundur@frjalsi.is.
Tilkynning um framboð til stjórnarsetu í Frjálsa 2026
Nauðsynleg fylgigögn framboða:
- Afrit af sakavottorði sem hægt er að sækja um hér
- Búsforræðisvottorð sem hægt er að sækja um hér
- Kynning á framboði fyrir vefsvæði Frjálsa
Frambjóðendum gefst jafnframt kostur á að skila kynningarmyndbandi, allt að 3 mínútum að lengd, sem verður birt á vef sjóðsins samhliða öðru kynningarefni á frambjóðendum. Hægt er að senda eigið myndband í gegnum WeTransfer eða nýta sér aðstoð við upptöku sem hægt er að óska eftir með því að senda á arsfundur@frjalsi.is.
Framangreind fylgigögn skulu ekki vera eldri en fjögurra vikna frá auglýstum ársfundi.
Nánari upplýsingar má finna í reglum stjórnar Frjálsa lífeyrissjóðsins um framkvæmd ársfundar og rafræna atkvæðagreiðslu.
Hæfisskilyrði til setu í stjórnum lífeyrissjóða
Fjallað er um hlutverk stjórna lífeyrissjóða og hæfisskilyrði sem þeir einstaklingar sem gefa kost á sér til setu í stjórnum lífeyrissjóða í 6. kafla laga nr. 129/1997, um skyldutryggingu lífeyrisréttinda og starfsemi lífeyrissjóða. Stjórnir lífeyrissjóða bera ábyrgð á rekstri sjóðanna og því er mikilvægt að frambjóðendur til stjórnar séu meðvitaðir um ábyrgð og skyldur stjórnarmanna.
Stjórnir lífeyrissjóðs annast m.a. eftirfarandi verkefni:
- að móta fjárfestingarstefnu lífeyrissjóðsins
- að móta innra eftirlit lífeyrissjóðsins og skjalfesta eftirlitsferla
- að móta eftirlitskerfi sem gerir sjóðnum kleift að greina, vakta, meta og stýra áhættu í starfsemi sjóðsins að ákveða hvernig innri endurskoðun skuli háttað
- að setja áhættustefnu og móta eftirlitskerfi með áhættu sjóðsins
- að láta fara fram tryggingafræðilega athugun á fjárhag sjóðsins
- að semja ársreikning fyrir hvert reikningsár
Þá taka stjórnir lífeyrissjóða ákvarðanir um ráðstafanir sem teljast óvenjulegar eða mikils háttar.
Einstaklingar sem taka sæti í stjórn þurfa að uppfylla tiltekin hlutlæg skilyrði s.s. um lögræði, fjárhagslegt sjálfstæði og að hafa gott orðspor. Þá mega einstaklingar sem taka sæti í stjórn ekki á síðustu fimm árum hafa verið úrskurðaðir gjaldþrota og mega ekki hafa hlotið dóm á síðustu tíu árum fyrir refsiverðan verknað í tengslum við atvinnurekstur, samkvæmt lagabálkum sem taldir eru upp í 1. mgr. 31. gr. laga nr. 129/1997. Að auki skulu stjórnarmenn uppfylla huglægt hæfisskilyrði um nægilega þekkingu og starfsreynslu til að geta gegnt stöðu sinni á tilhlýðilegan hátt.
Fjármálaeftirlitið (FME) sker úr um hvort stjórnarmenn uppfylli hæfiskröfur laga og því þurfa einstaklingar sem bjóða sig fram til stjórnarsetu að vera reiðubúnir til að þreyta munnlegt hæfismat. Á grundvelli laga hefur FME sett reglur nr. 180/2013 þar sem nánar er kveðið á um framkvæmd hæfismatsins.
Þá er frambjóðendum sérstaklega bent á grein sem birtist í vefriti Fjármálaeftirlitsins: Hverjir eiga erindi í stjórn lífeyrissjóðs?