Skattfrjálsu úrræðin eru tvö

Það eru tvö úrræði í boði sem gera þér kleift að fjármagna íbúðakaup að hluta til skattfrjálst. Í báðum úrræðunum er boðið upp á reglulegar greiðslur framtíðariðgjalda inn á lán en í úrræði fyrstu íbúðar er auk þess hægt að fá uppsafnaða eingreiðslu iðgjalda greidda sem húsnæðissparnað við fyrstu íbúðakaup. Úrræðin eru nú bæði varanleg og gilda í 10 ár samanlagt fyrir hvern einstakling þ.e. 120 mánuði. Eingöngu er heimilt að nýta iðgjöld, ekki ávöxtun.

  • Úrræði fyrstu íbúðar: þú sækir um skattfrjálsa ráðstöfun viðbótarlífeyrissparnaðar/tilgreindrar séreignar á skattur.is ef minna en 12 mánuðir eru frá kaupsamningi fyrstu íbúðar EÐA ef þú hefur ekki átt íbúð sl. 5 ár.
  • Almenna úrræðið: þú sækir um skattfrjálsa ráðstöfun viðbótarlífeyrissparnaðar á skattur.is ef ekki er um fyrstu íbúðakaup að ræða eða ef meira en tólf mánuðir eru frá kaupsamningi fyrstu íbúðar.

Umsóknarferlið

Umsóknarferlið

Umsóknarferlið

Umsóknarferlið

1
2
3
1

Fyrsta skrefið

Sótt er um bæði úrræðin á skattur.is.

2

Afgreiðslutími

Það getur tekið Skattinn einhverjar vikur að afgreiða hverja umsókn. Staðfesting eða höfnun berst með tölvupósti.

Ef umsókn er hafnað hjá Skattinum má skrá sig inn á skattur.is og uppfæra þar umsókn til að bregðast við athugasemdum.

3

Umsókn samþykkt

Eftir að Skatturinn samþykkir umsókn er hún afgreidd hjá Arion banka eins fljótt og mögulegt er.

Greiðsluupplýsingar

Eingreiðslur húsnæðissparnaðar fara fram tvisvar í mánuði, annars vegar 15. hvers mánaðar og hins vegar síðasta virka dag hvers mánaðar.

Greiðslur inn á lán eru almennt afgreiddar mánaðarlega en þó aldrei sjaldnar en á 3 mánaða fresti.

Í Arion appinu er einfalt að fylgjast með stöðunni á sparnaðinum þínum og hvort greiðslur inn á lán séu virkar.

Algengar spurningar