Frétt

Sameining Frjálsa og Lífeyrissjóðs Tannlæknafélags Íslands á næsta leiti

Sameining Frjálsa og Lífeyrissjóðs Tannlæknafélags Íslands á næsta leiti

Nú styttist í að Frjálsi og Lífeyrissjóður Tannlæknafélags Íslands verði sameinaðir en stefnt er að því að framkvæma sameininguna um miðjan apríl. Sameiningin mun miðast við sl. áramót en framkvæmd hennar hefur dregist þar sem hún var tilkynningarskyld til Samkeppniseftirlitsins.

Ánægjulegt er að greina frá því að Samkeppniseftirlitið hefur nú lokið athugun sinni á sameiningunni án íhlutunar. Sjóðfélagar og launagreiðendur munu fá sendan tölvupóst eftir páska með nánari upplýsingum um sameininguna.

Nánari upplýsingar um sameininguna má nálgast hér.