Frétt
Starfsemi Frjálsa árið 2025
31. mars 2026Metfjöldi greiðandi sjóðfélaga
Ársreikningur sjóðsins fyrir árið 2025 liggur nú fyrir og er aðgengilegur hér. Helstu niðurstöður eru eftirfarandi:
- Hrein eign Frjálsa nam 594,6 milljörðum kr. og stækkaði sjóðurinn um 61,8 milljarða kr. eða um 11,6%. Hrein eign fjárfestingarleiða í séreignadeild var 393 milljarðar kr. og hrein eign tryggingadeildar var 201,5 milljarðar kr.
- Heildariðgjöld voru 37 milljarðar og hækkunin nam um 6,2% á milli ára.
- Metfjöldi sjóðfélaga sem greiddi iðgjöld í sjóðinn á árinu var 28.478 samanborið við 27.726 á fyrra ári. Fjöldi sjóðfélaga sem átti séreign eða réttindi í lok árs var 75.214 og fjölgaði þeim um 2.574 á árinu.
- Lífeyrisgreiðslur hækkuðu um 21,5% milli ára og námu 13,9 milljörðum kr. Lífeyrisþegar voru 8.084. Greiddir voru 1,8 milljarðar kr. af viðbótarsparnaði inn á höfuðstól lána eða til öflunar íbúðarhúsnæðis.
- Nýjum lánveitingum fjölgaði á milli ára. Á árinu voru afgreidd 562 lán að fjárhæð 20,1 milljarða kr. Af nýjum lánum voru 48% óverðtryggð og 52% verðtryggð.
- Hreinar fjárfestingartekjur sjóðsins námu 37,5 milljörðum. Nafnávöxtun fjárfestingarleiða var á bilinu 5,8% til 8,6% og raunávöxtun á bilinu 2,0% til 4,7%. Nánari upplýsingar um ávöxtun og þróun verðbréfamarkaða er að finna hér.
- Kostnaðarhlutfall sjóðsins, þ.e. hlutfall rekstrarkostnaðar og beinna fjárfestingargjalda af meðalstöðu hreinnar eignar lækkaði um 0,02 prósentustig á milli ára og var 0,19%.
- Í árslok 2025 voru eignir umfram áunnar skuldbindingar (áunnin staða) -5,8% og núvirt framtíðariðgjöld umfram núvirtar framtíðarskuldbindingar (framtíðarstaða) voru 2,9%. Heildareignir umfram heildarskuldbindingar (heildarstaða) voru -1,6%. Tryggingafræðileg staða Frjálsa lífeyrissjóðsins er innan lagalegra marka og þarf því ekki að gera breytingar á réttindum sjóðfélaga.
Nánari upplýsingar um ársuppgjörið er að finna í ársreikningnum.
Lykilupplýsingar hafa nú verið uppfærðar á vefsíðu sjóðsins til samræmis við upplýsingar í ársreikningi.