Frétt
Erlendar sérhæfðar fjárfestingar
24. mars 2026Í nýjustu fræðslugrein á vef Frjálsa, fara Ásgeir Bragason og Halldór Grétarsson, sjóðstjórar í eignastýringu fagfjárfesta hjá Arion banka, yfir erlendar sérhæfðar fjárfestingar sjóðsins.
Erlendar sérhæfðar fjárfestingar hafa á síðustu árum orðið veigamikill hluti af eignastýringu lífeyrissjóða. Sem langtímafjárfestir, sem í flestum tilfellum hefur stöðugt innstreymi iðgjalda og skuldbindingar sem ná yfir marga áratugi, hefur lífeyrissjóður bæði svigrúm og skyldu til að byggja upp vel dreift eignasafn sem skilar stöðugri raunávöxtun til langs tíma. Í því samhengi gegna sérhæfðar óskráðar fjárfestingar mikilvægu hlutverki, þar sem ávöxtun þeirra byggir á öðrum drifkröftum en hefðbundinna skráðra eigna og tengist síður skammtímasveiflum á mörkuðum. Þessi eignaflokkur býður upp á tækifæri til að taka þátt í alþjóðlegri verðmætasköpun, meðal annars í gegnum rekstrarumbætur fyrirtækja, verkefnum sem stuðla að þróun og styrkingu innviða og sérhæfðum fjármögnunarleiðum.
Helstu atriði greinarinnar
Frjálsi lífeyrissjóðurinn hefur á undanförnum árum byggt markvisst upp erlendar sérhæfðar fjárfestingar, sem fela m.a. í sér óskráðar eignir á borð við framtaks‑, lána- og innviðasjóði. Slíkar fjárfestingar eru langtíma í eðli sínu og verðmætasköpun þeirra þróast með rekstri og framvindu undirliggjandi eigna.
Ávöxtun þróast yfir tíma
Ávöxtun óskráðra sjóða fylgir yfirleitt svokallaðri J‑kúrfu, þar sem fyrstu árin einkennast af innköllun fjármagns og kostnaði, áður en virðisaukning eigna tekur við og útgreiðslur aukast. Eignasafn Frjálsa í erlendum sérhæfðum fjárfestingum er tiltölulega ungt og því eru margar fjárfestingar enn á uppbyggingarstigi. Eldri sjóðir hafa hins vegar byrjað að skila jákvæðu sjóðstreymi og heildarárangur síðustu fimm ára hefur verið stöðugur, eða um 6% í krónum.
Uppbyggingu að ná markmiðum
Frá árinu 2020 hefur Frjálsi markvisst aukið skuldbindingar sínar í erlendum sérhæfðum fjárfestingum. Gert er ráð fyrir að vægi eignaflokksins nái hámarki árið 2028, um 8% í stærstu leið sjóðsins. Langtímamarkmið er 11% hlutdeild. Um 60% skuldbindinga hafa þegar verið innkallaðar og sjóðurinn færist nú frá hraðri uppbyggingu yfir í viðhald, þar sem jafnvægi í innköllunum og útgreiðslum verður lykilatriði.
Framsækin stýring með spálíkani
Til að tryggja stöðugt vægi eignaflokksins og skipulegan vöxt nýtir Frjálsi aðlagað spálíkan byggt á Yale-líkaninu. Með því er hægt að spá fyrir um innköllunarhraða, útgreiðslur og hvenær þörf er á nýjum skuldbindingum. Líkanið styður agaða langtímastýringu og gefur skýra mynd af væntanlegri þróun eignaflokks sem einkennist af löngum líftíma og óreglulegu sjóðstreymi.
Erlendar sérhæfðar fjárfestingar
|
Ásgeir Bragason |
Halldór Grétarsson |

