Frétt
Frjálsi lífeyrissjóðurinn tekur þátt í fjármögnun nýs sérhæfðs hjúkrunarrýmis
20. mars 2026Undir lok árs 2024 tók Frjálsi lífeyrissjóðurinn, ásamt fjölda annarra lífeyrissjóða, þátt í fjármögnun nýs sérhæfðs hjúkrunarrýmis í gegnum samstarfsvettvang Innviðafélags Íslands í rekstri Arcur. Markmið verkefnisins er meðal annars að mæta miklum flæðisvanda á bráðasjúkrahúsum Landspítala við Hringbraut og í Fossvogi. Nýlega var fjallað um verkefnið í frétt Viðskiptablaðsins.
Um er að ræða fjármögnun á fasteigninni að Urðarhvarfi 16, sem hefur verið breytt og verður nýtt sem sérhæft hjúkrunarrými með 100 plássum. Kaupandi fasteignarinnar er Súlur Reykjavík ehf., félag í eigu Heilsuverndar og fleiri fjárfesta. Fyrir liggur bindandi 20 ára leigusamningur við Ríkiseignir, auk fjármögnunarsamnings við Kviku banka og lífeyrissjóði. Húsið var nýverið afhent Heilsuvernd til rekstrar, um einu og hálfu ári eftir að fjármögnun verkefnisins var tryggð. Heildarfjárhæð verkefnisins nemur 6.500 milljónum króna.
Aðkoma lífeyrissjóðanna var í formi kaupa á verðtryggðu skuldabréfi með fyrsta veðrétti í eigninni. Kvika banki annaðist fjármögnun á framkvæmdartíma á síðari veðréttum. Framkvæmdatíma lauk á undan áætlun og eftir lok hans er eignin að fullu fjármögnuð af lífeyrissjóðum. Auk Frjálsa lífeyrissjóðsins koma Birta lífeyrissjóður, Almenni Lífsverk lífeyrissjóður, Eftirlaunasjóður FÍA, Lífeyrisauki, Lífeyrissjóður bænda og Lífeyrissjóður Rangæinga að verkefninu.
Hér er um að ræða áhugavert og þarft fjárfestingarverkefni sem getur skilað góðri ávöxtun að teknu tilliti til áhættu, auk þess að hafa mjög jákvæð samfélagsleg áhrif.
Þátttaka Frjálsa lífeyrissjóðsins fólst í kaupum á skuldabréfum að nafnvirði 1.320 milljóna króna (um 0,3% af heildareignum sjóðsins). Kaupin fóru fram í áföngum á 16 mánaða tímabili eftir því sem verkefnið þróaðist. Nú hefur lokaúttekt verið samþykkt og fjárfestingin verið kölluð inn að fullu.
Frjálsi lífeyrissjóðurinn fagnar að ráðist sé í verkefni sem þessi þar sem brýnni innviðatengdri samfélagslegri þörf er mætt með aðkomu langtímafjárfesta líkt og lífeyrissjóða.