Frétt
Eru eftirlaunaárin innan seilingar?
10. mars 2026Frjálsi í samstarfi við Arion banka býður til opins fræðslufundar um útgreiðslur lífeyrissparnaðar.
Að mörgu er að hyggja þegar kemur að útgreiðslu lífeyrissparnaðar og því leggjum við sérstaka áherslu á faglega og persónulega útgreiðsluráðgjöf ásamt því að bjóða reglulega upp á opna fræðslufundi um útgreiðslur.
Útgreiðslur lífeyrissparnaðar geta fyrst hafist við 60 ára aldur, en þó eru útgreiðslureglur mismunandi eftir lífeyrissjóðum og tegundum lífeyrissparnaðar. Meðal umfjöllunarefnis verða útgreiðslureglur, skattaleg meðferð lífeyrissparnaðar og samspil útgreiðslna við greiðslur frá Tryggingastofnun. Við viljum vekja athygli á því að nú er hægt að sækja um útgreiðslu eftirlauna og séreignar í Arion appinu.
Fræðslufundurinn verður haldinn mánudaginn 23. mars kl. 17:15:
- Í höfuðstöðvum Arion banka, Borgartúni 19, 105 Reykjavík
- Í streymi á Facebook síðu Frjálsa lífeyrissjóðsins
Fundurinn stendur yfir í rúma klukkustund og verður boðið upp á léttar kaffiveitingar.
Vinsamlega skráðu þig á fundinn, veljir þú að mæta á fundarstað.
Allir velkomnir.