Frétt

Áherslur fjárfestingarstefnu Frjálsa 2026

Áherslur fjárfestingarstefnu Frjálsa 2026

Stjórn Frjálsa hefur mótað fjárfestingarstefnu fyrir árið 2026 og er hana að finna hér. Síðustu ár hefur áhersla verið lögð á að auka hlutfall og dreifingu erlendra eigna. Samhliða hefur verið dregið úr vægi innlendra eigna. Í fjárfestingarstefnu fyrir árið 2026 er haldið áfram á þessari vegferð.

Tryggingadeild

Fjárfestingarstefna tryggingadeildar hefur verið heldur aðhaldssöm í gegnum árin með það að markmiði að lágmarka sveiflur í ávöxtun og líkur á að skerða þurfi réttindi sjóðfélaga. Við mótun stefnu tryggingadeildar hefur jafnframt verið litið til þess að skylduiðgjöldum sjóðfélaga er skipt í tryggingadeild og séreignadeild og geta sjóðfélagar sjálfir valið sér fjárfestingarleið og þar með áhættustig þess hluta iðgjaldsins sem rennur í séreign. Breytingar á stefnunni í ár eru gerðar til þess halda áfram á vegferð síðustu ára að auka við erlendar fjárfestingar. Markmið um hlutfall eignaflokka hjá tryggingadeild breytast eins og hér segir:

  • Innlend skuldabréf og innlán lækka úr 46% í 45%
  • Erlend skuldabréf lækka úr 4% í 3%
  • Erlend hlutabréf hækka úr 28% í 29%
  • Erlendar sérhæfðar fjárfestingar hækka úr 10% í 11%

Frjálsi áhætta

Undanfarin ár hefur fjárfestingarleiðin Frjálsi áhætta stækkað töluvert. Jafnframt hefur verið skerpt nokkuð á áhættu leiðarinnar til að aðgreina hana frekar frá öðrum fjárfestingarleiðum sjóðsins. Fjárfestingu í hlutabréfum og hlutabréfatengdum afurðum fylgir almennt meiri sveiflur í ávöxtun en í skuldabréfum. Að sama skapi er vænt langtímaávöxtun þeirra hærri.

Markmið um hlutfall eignaflokka hjá Frjálsa áhættu eru eins og hér segir:

  • Innlend skuldabréf og innlán lækka úr 22% í 20%
  • Innlend hlutabréf óbreytt í 23%
  • Innlendar sérhæfðar fjárfestingar óbreytt í 4%
  • Erlend skuldabréf og innlán óbreytt í 1%
  • Erlend hlutabréf lækki úr 43% í 42%
  • Erlendar sérhæfðar fjárfestingar hækka úr 7% í 10%

Fjárfestingarleiðir ævilínu – Frjálsi 1, 2 og 3

Markmið um hlutfall eignaflokka hjá fjárfestingarleiðum ævilínu breytast eins og hér segir:

  • Erlendar eignir
    • Frjálsa 1 hækkar úr 47% í 49%
    • Frjálsa 2 hækkar úr 27% í 28%
  • Innlend skuldabréf og innlán
    • Frjálsa 1 lækkar úr 34% í 32%
    • Frjálsa 2 lækkar úr 64% í 63%
  • Erlend skuldabréf og innlán
    • Frjálsa 1 lækkar úr 3% í 2%
    • Frjálsa 2 lækkar úr 3% í 2%
  • Erlend hlutabréf
    • Frjálsa 1 hækkar úr 34% í 36%
    • Frjálsa 2 hækkar úr 18% í 19%

Eignir í Frjálsa 3 eru einungis byggðar upp á innlendum skuldabréfum og innlánum. Í fjárfestingarstefnu 2025 eru helstu breytingar þær að vægi ríkisskuldabréfa lækkar úr 20% í 18%. Á móti er aukið vægi fasteignaveðtryggðra skuldabréfa úr 12% í 14%.

Frjálsi innlán

Frjálsi innlán er ný sparnaðarleið hjá Frjálsa sem veitir viðskiptavinum öruggan kost með lágmarks áhættu. Fjárfestingar í Frjálsa innlánum fara alfarið í innlán. Frjálsi innlán tekur ekki við reglulegum iðgjöldum, en hægt er að flytja uppsafnaða inneign úr Frjálsa séreign yfir í þessa leið. Frjálsi innlán verður í boði á fyrri hluta næsta árs.

Á eftirfarandi mynd má sjá markmið um eignasamsetningu hverrar leiðar fyrir sig. Þó er heimilt að nýta vikmörk í fjárfestingarstefnu með því að undir- eða yfirvigta einstaka eignaflokka til að nýta tækifæri á mörkuðum og/eða til að draga úr áhættu.