Frétt

Innlendar sérhæfðar fjárfestingar

Innlendar sérhæfðar fjárfestingar

Í nýjustu fræðslugrein á vef Frjálsa, fara Egill Tryggvason sjóðstjóri og Ásdís Karen Friðbjörnsdóttir sérfræðingur í eignastýringu fagfjárfesta hjá Arion banka, yfir innlendar sérhæfðar fjárfestingar sjóðsins.

Sérhæfðar fjárfestingar eru fjárfestingar sem falla ekki undir hefðbundna fjárfestingarkosti eins og skráð hlutabréf og skuldabréf. Þessar fjárfestingar eru oft í formi fjárfestinga í gegnum óskráða sjóði, sem hafa takmarkaðan seljanleika til skemmri tíma og fela í sér langtímabindingu.

Mikilvægt er að dreifa áhættu í eignasafni lífeyrissjóðs með samvali ólíkra eignaflokka. Eftir efnahags-hrunið árið 2008 jókst áhugi sjóðsins á slíkum sérhæfðum fjárfestingum innanlands og frá þeim tíma hefur sérþekking á þessu sviði vaxið hér á landi og fyrirtækjaumhverfið orðið móttækilegra fyrir slíkum fjárfestum.

Innlendar sérhæfðar fjárfestingar

Egill Tryggvason

 

Ásdís Karen Friðbjörnsdóttir