Frétt
Viðbótarlífeyrissparnaður í Frjálsa nú hluti af Arion fríðindum
19. maí 2025Það er gleðilegt að segja frá því að nú er litið á viðbótarlífeyrissparnað Frjálsa sem þjónustuþátt á öllum stigum Arion fríðinda.
Fyrir þá sjóðfélaga, sem ekki hafa enn kynnt sér Arion fríðindi, er rétt að varpa stuttlega ljósi á fríðindakerfið. Arion vill að viðskiptavinir sínir njóti góðs af því að vera í viðskiptum við bankann og nýti sér þá fjölbreyttu þjónustu sem hann býður upp á. Til að sýna þann vilja í verki hefur Arion nú kynnt til leiks nýtt og öflugt fríðindakerfi sem virkar þannig að því meiri þjónustu sem þú nýtir þér hjá bankanum, dótturfélögum eða Frjálsa, þeim mun meiri fríðinda nýturðu. Líkt og áður sagði telst viðbótarlífeyrissparnaður hjá Frjálsa nú á meðal þjónustuþátta í fríðindakerfinu; viðskiptavinir Arion, sem einnig eru sjóðfélagar Frjálsa, geta því notið enn meiri fríðinda en áður.
Fríðindin eru mismunandi eftir því á hvaða stigi í fríðindakerfinu þú ert. Hér mætti nefna endurgreiðslu af tryggingum hjá Verði, lægra árgjald fyrir kreditkort, fríar debetkortafærslur og afslátt af hlutabréfaviðskiptum. Þú finnur lista yfir fríðindin í Arion appinu. (Hér má lesa sér betur til um Arion fríðindi og finna leiðbeiningar um hvernig þú virkjar fríðindakerfið í Arion appinu – það tekur aðeins hálfa mínútu.)
Þjónustan hjá Frjálsa telst vera virk ef að minnsta kosti ein innborgun vegna viðbótarlífeyrissparnaðar hefur borist í Frjálsa á síðustu fjórum mánuðum. Jafnframt er viðbótarlífeyrissparnaður hjá Frjálsa nú tekinn með í reikninginn í fjárhagsstöðu viðskiptavina Arion. Þannig gæti flutningur viðbótarlífeyrissparnaðar frá öðrum vörsluaðilum til Frjálsa aukið Arion fríðindi. Vakin er athygli á því að íbúðalán hjá Frjálsa og séreign sem kemur úr skyldulífeyrissparnaði, teljast ekki með sem þjónustuþættir í fríðindakerfinu og er séreignin heldur ekki höfð með við mat á fjárhagsstöðu viðskiptavina.