Frétt

Þróun fjármálamarkaða á árinu og ávöxtun Frjálsa lífeyrissjóðsins

Þróun fjármálamarkaða á árinu og ávöxtun Frjálsa lífeyrissjóðsins

Tímabilið frá áramótum og til dagsins í dag hefur einkennst af fréttum sem hafa haft neikvæð áhrif á fjármálamarkaði hér innanlands sem og erlendis. Hingað til eru helstu fréttir ársins innrás Rússa í Úkraínu, versnandi verðbólguhorfur og hækkandi stýrivextir svo eitthvað sé nefnt. Lágvaxtatímabili síðustu ára er lokið sem hefur bersýnileg áhrif á markaðsaðstæður. Nær allir markaðir í heiminum hafa lækkað umtalsvert á árinu en hlutabréf hafa að jafnaði lækkað meira en skuldabréf. Slíkar markaðsaðstæður undirstrika mikilvægi þess að vera með dreift eignasafn til þess að standast sveiflur á mörkuðum. Frjálsi lífeyrissjóðurinn leggur upp úr því að fjárfesta í ólíkum eignaflokkum, atvinnugreinum og landsvæðum til þess að dreifa áhættu sem mest.

Innlendi markaðurinn

Mikil lækkun hefur verið á innlendum hlutabréfamarkaði það sem af er ári. OMXI10, úrvalsvísitala íslenska markaðsins, hefur lækkað um 21,73% frá árslokum 2021 (31.12.2021 til 30.06.2022). Það má segja að þessi lækkun á félögum innanlands hafi byrjað af alvöru eftir innrás Rússa í Úkraínu þann 24. febrúar. Verðbólga mældist 8,8% í júní og hefur ekki verið meiri frá árinu 2009. Til þess að bregðast við hærri verðbólgu hefur Seðlabanki Íslands hækkað stýrivexti á árinu um 2,75 prósentustig og standa þeir nú í 4,75% en fjárfestar búast við frekari vaxtahækkunum í haust. Þessi mikla verðbólga og hækkun stýrivaxta er meginástæða þeirrar lækkunar sem við sjáum á íslenska hlutabréfamarkaðnum. Ávöxtunarkrafa bæði óverðtryggðra og verðtryggðra innlendra ríkisskuldabréfa hefur hækkað á árinu. Skuldabréfasöfn Frjálsa eru að mestu verðtryggð en vægi verðtryggðra skuldabréfa af innlendu skuldabréfasafni Frjálsa án sjóðfélagalána og ríkisskuldabréfasjóða var 87% í lok júní.

 

Íslenska krónan

Gengi krónunnar hefur styrkst um 5,1% frá áramótum samkvæmt gengisvísitölu Seðlabankans sem er vegið virði helstu gjaldmiðla heims gagnvart krónunni. Krónan hefur styrkst frá áramótum á móti Evru um tæp 5,9% en í júní hefur hún hins vegar veikst um rúm 1,9%. Þrátt fyrir þessa lækkun í mánuðinum er búist við áframhaldandi styrkingu hennar. Krónan hefur veikst á móti Bandaríkjadollar eða um tæp 2,6% en það helst í hendur við það að dollarinn hefur verið að styrkjast á móti evrunni. Styrkingu krónunnar má m.a. rekja til endurkomu ferðamanna eftir Covid, aukins áhuga erlendra fjárfesta á innlendum verðbréfamarkaði og auknu aðhaldi í peningamálastefnu Seðlabanka Íslands. Til þess að bregðast við væntri styrkingu krónunnar var erlendur gjaldeyrir í undirvigt hjá sjóðnum. Núna nýlega eftir að styrking krónunnar raungerðist hefur Frjálsi lífeyrissjóðurinn aukið stöðu sína í erlendum gjaldeyri jafnt og þétt. Þetta er gert vegna þess að með styrkingu krónunnar verður verð á erlendum gjaldeyri hagstæðara.

 

Erlendir verðbréfamarkaðir

Líkt og íslenski markaðurinn hafa erlendir verðbréfamarkaðir lækkað mikið. Frá áramótum hefur heimsvísitala hlutabréfa (e. MSCI World Index) lækkað um 21,2% í Bandaríkjadal. Flestar vísitölur hlutabréfa í Evrópu og Bandaríkjunum hafa lækkað um a.m.k. 15%. Verðbólga í heiminum, eins og hér heima, er að ná methæðum og hafa flestir seðlabankar heims nú þegar byrjað að hækka stýrivexti. Verðhækkanir á hráolíu hafa verið gríðarlegar á árinu og hafa svo sannarlega skilað sér hingað til lands. Seðlabankar heims eru almennt taldir hafa verið of seinir að bregðast við verðbólguástandinu, annaðhvort munu stýrivaxtahækkanir ná tökum á verðbólgunni eða ekki, ef ekki þá mun efnahagssamdráttur ná henni niður á endanum. Nýlega hefur Frjálsi lífeyrissjóðurinn byrjað að auka stöðu sína í erlendum hlutabréfum í þeim söfnum sem eru í undirvigt, sagan segir að eftir miklar lækkanir getur verið gott að koma inn á markaðinn og auka stöðu sína í eignaflokknum.

Ávöxtun Frjálsa lífeyrissjóðsins

Ávöxtun síðustu ára hefur verið afar góð en árið 2021 var með þeim bestu frá upphafi sjóðsins. Nafnávöxtun Frjálsa áhættu var t.a.m. 20,7% og ávöxtun Frjálsa 1 var 17,4% en þá var innlendi hlutabréfamarkaðurinn mjög kraftmikill. Ávöxtun lífeyrissjóða er í eðli sínu háð markaðsaðstæðum hverju sinni, til skamms tíma getur ávöxtunin verið sveiflukennd en það sem skiptir mestu máli er að raunávöxtun til langs tíma sé jákvæð. Á þessari stundu siglum við í ólgusjó sveiflna á fjármálamörkuðum og þ.a.l. hefur nafnávöxtun sjóða Frjálsa ekki verið jafngóð og undanfarið ár. Verðbólgan bætir síðan gráu ofan á svart og bítur mikið á raunávöxtun sjóðsins. Þegar markaðir hafa lækkað mikið birtast líka tækifæri sem hægt er að nýta sér, það á sér t.d. stað þegar góð félög hafa verið undirverðlögð í allri ringulreiðinni. Langtímaávöxtun sjóðsins hefur verið góð, á myndunum hér fyrir neðan má sjá meðalávöxtun Frjálsa lífeyrissjóðsins til 5 og 10 ára m.v. 30. júní ásamt ávöxtun sjóðsins frá áramótum. Nafnávöxtun Frjálsa 1 til 10 ára á ársgrundvelli hefur t.a.m. verið 8,3% og raunávöxtun 5% sem verður að teljast afar góð ávöxtun.

Sjóðfélagar Frjálsa lífeyrissjóðsins eru eins ólíkir og þeir eru margir, þeir eru á mismunandi aldri, aðstæður þeirra eru ólíkar og þeir eru mis-áhættusæknir. Fjárfestingarleiðir með ólíkum eignasamsetningum eru í boði eftir áhættuvilja og getur hver sjóðfélagi valið fyrir sig samkvæmt sínum þörfum. Ungur sjóðfélagi getur t.d. kosið að velja áhættumeiri fjárfestingaleið sem á sömuleiðis meiri möguleika á hærri ávöxtun, en með meiri sveiflum, á meðan eldri sjóðfélagi getur kosið að velja áhættuminni leið. Aðalatriðið er að meðalávöxtun sjóðsins til lengri tíma er mikilvægari en há eða lág ávöxtun til skamms tíma.