Fræðslufundur Frjálsa lífeyrissjóðsins
Á fundinum verður farið yfir áhrif lagabreytinga sem taka gildi 1. janúar 2023. Áhersla verður lögð á þann hluta lagabreytinganna sem snýr að áhrifum útgreiðslna séreignar á lífeyrisgreiðslur almannatrygginga. Einnig verður stutt umfjöllun um ávöxtun sjóðsins.
Fundurinn fer fram í höfuðstöðvum Arion banka, Borgartúni 19, miðvikudaginn 26. mars kl. 17.15. Fundinum verður einnig streymt á Facebook síðum Arion banka og Frjálsa lífeyrissjóðsins.
Boðið verður upp á léttar kaffiveitingar. Allir velkomnir.
Vinsamlegast skráðu þig á fundinn veljir þú að mæta á fundarstað.