Greiðsluhlé vegna afborgana lána

 

Athugið að ekki er lengur hægt að sækja um greiðsluhlé


 

Frjálsi lífeyrissjóðurinn mun koma til móts við þá sjóðfélaga sem sjá fram á erfiðleika við að standa skil á afborgunum lána vegna Covid-19. Til að auðvelda sjóðfélögum að takast á við mögulegar áskoranir framundan býðst þeim að gera hlé á afborgunum lána í allt að þrjá mánuði.

Með greiðsluhléi eru afborganir lána frystar í þrjá mánuði, þ.e. ekki þarf að greiða af láninu næstu þrjá mánuði eftir undirritun. Afborganir og vextir lána leggjast á meðan á höfuðstól lánsins til hækkunar á því. Þessi hækkun á höfuðstól leiðir til hærri afborgana af láninu eftir að greiðsluhléi lýkur.

Ef þörf er á frekari sveigjanleika er farið yfir málin með hverjum og einum.

Í ljósi aðstæðna hvetjum við sjóðfélaga til að nýta rafrænar leiðir til þess að hafa samband.

Sækja um greiðsluhlé á vef Arion banka

Framlenging á greiðsluhléi

Viðskiptavinum sem standa frammi fyrir atvinnumissi, skertum tekjum eða veikindum stendur til boða að framlengja greiðsluhlé á íbúðalánum sínum til allt að 6 mánaða. 

Hægt er að framlengja núverandi greiðsluhlé um 3 mánuði og verður endurmetið að þeim tíma liðnum ef þörf verður á.

Er nú þegar með greiðsluhlé og óska eftir framlenginu
Teiknuð mynd - ský og rigningardropar

Fréttir

Breytingar á vöxtum sjóðfélagalána

20. ágúst 2025

Fastir vextir verðtryggðra lána hjá Frjálsa hækka úr 4,41% í 4,61% og vextir óverðtryggðra lána, sem eru fastir til þriggja ára í senn, hækka úr 8,41% í 8,59% og taka vaxtabreytingarnar gildi...

Lesa meira