Frétt

Útgreiðslur lífeyrissparnaðar - hvað ber að hafa í huga

Útgreiðslur lífeyrissparnaðar - hvað ber að hafa í huga

Arion banki í samstarfi við lífeyrissjóði í rekstri bankans býður til opins fræðslufundar um útgreiðslur lífeyrissparnaðar.

Að mörgu er að hyggja þegar kemur að útgreiðslu lífeyrissparnaðar og því leggjum við sérstaka áherslu á faglega og persónulega útgreiðsluráðgjöf ásamt því að bjóða reglulega upp á opna fræðslufundi um útgreiðslur.

Útgreiðslur lífeyrissparnaðar geta fyrst hafist við 60 ára aldur, en þó eru útgreiðslureglur mismunandi eftir tegundum lífeyrissparnaðar. Meðal umfjöllunarefnis verða útgreiðslureglur, skatta¬leg meðferð lífeyrissparnaðar og samspil útgreiðslna við greiðslur frá Tryggingastofnun.

Fræðslufundurinn verður haldinn fimmtudaginn 11. apríl kl. 17:15 og fer fram:

  • í höfuðstöðvum Arion banka, Borgartúni 19, 105 Reykjavík
  • í streymi á Facebook síðu Arion banka og Frjálsa lífeyrissjóðsins

Vinsamlega skráðu þig á fundinn, veljir þú að mæta á fundarstað.

Fundurinn stendur yfir í rúma klukkustund og verður boðið upp á léttar kaffiveitingar. Allir velkomnir.