Frétt

Þjónustuleiðum fjölgað á ný

Þjónustuleiðum fjölgað á ný

Frjálsi leggur ávallt áherslu á að tryggja sjóðfélögum sínum faglega og skjóta þjónustu og vill koma á framfæri þakklæti fyrir hve vel sjóðfélagar hafa aðlagast þeim breytingum sem gerðar hafa verið á þjónustu í kjölfar Covid-19. Nú er komið að því að fjölga þjónustuleiðum á ný en í hægum skrefum þó.

Frá og með 12. maí verður hægt að bóka fundi vegna lána hjá fjármálaráðgjöfum Arion banka á Bíldshöfða og frá og með 18. maí einnig í Borgartúni 18. Eingöngu verður hægt að taka á móti þeim sjóðfélögum sem eiga fyrirfram bókaða fundi til að draga úr biðröðum í útibúum og þar með smithættu. Til að byrja með verður opið frá kl. 11-16 alla virka daga en afgreiðslutíminn mun lengjast í takt við frekari tilslakanir á samkomubanni. Hér má reikna lán, skoða lánareglur og framkvæma rafrænt greiðslumat.

Lífeyrisráðgjafar munu enn um sinn veita útgreiðsluráðgjöf og lífeyrisráðgjöf almennt í gegnum síma 444 6500, tölvupóst á frjalsi@frjalsi.is og netspjall á frjalsi.is. Eins og áður geta sjóðfélagar fylgst með stöðu sinni, sótt um útgreiðslu og fleira á Mínum síðum á frjalsi.is eða í gegnum Netbanka Arion banka.

Sjóðfélagar eru hvattir til að panta símtal/bóka fund með því að skrá erindi sitt hér, bæði vegna lána og lífeyrismála. Í kjölfarið verður haft samband við sjóðfélaga og mál hans leyst í gegnum síma eða rafrænar leiðir, eftir atvikum. Bókaður verður fundur vegna lánamála ef með þarf.

Tilkynnt verður um frekari breytingar í þjónustu jafnskjótt og nýjar upplýsingar liggja fyrir.