Frétt

Nýr sjóðfélagavefur - Mínar síður

Nýr sjóðfélagavefur - Mínar síður

Mínar síður- sjóðfélagavefur Frjálsa lífeyrissjóðsins hefur nú litið dagsins ljós. Þú getur skráð þig inn á Mínar síður með rafrænum skilríkjum. Einnig hefur þú aðgang að Mínum síðum í gegnum Netbanka Arion banka undir Lífeyrissparnaður. 

Á Mínum síðum er meðal annars hægt að fá yfirlit yfir stöðu, gera breytingar á samningi, tilkynna um nýjan launagreiðanda, sækja um útgreiðslur og afþakka pappírsyfirlit auk þess sem verðandi sjóðfélagar geta gert nýja samninga. Aðgerðir eru framkvæmdar í örfáum skrefum og lýkur flestum með rafrænni undirritun. Vakin er athygli á myndbandi með leiðbeiningum um Mínar síður auk nokkurra fróðleiksmola um lífeyrismál almennt.

Verkefnið felur í sér mikinn ávinning og er liður í því að einfalda ferli og auka aðgengi að upplýsingum á þægilegan og fljótlegan hátt.