Frétt

Hækkun mótframlags

Hækkun mótframlags

  • Engin tilkynningarskylda hjá sjóðfélögum Frjálsa lífeyrissjóðsins
  • Öll hækkun mótframlags ráðstafast í frjálsa séreign

Mikið hefur verið fjallað um hækkun mótframlags í lífeyrissjóð og svokallaða tilgreinda séreign í fjölmiðlum undanfarið. Sjóðfélagar kjarasamningsbundinna lífeyrissjóða á almennum vinnumarkaði geta valið að hækkun mótframlags renni í svokallaða tilgreinda séreign, allt að 2% af launum frá 1. júlí 2017 og 3,5% frá 1. júlí 2018. Lögð hefur verið áhersla á að fólk hafi samband við sinn lífeyrissjóð til að hækkunin renni í séreign hjá viðkomandi sjóði.

Sjóðfélagar sem greiða skylduiðgjald í Frjálsa lífeyrissjóðinn þurfa hinsvegar ekki að tilkynna sjóðnum sérstaklega um slíka ráðstöfun. Öll hækkun á mótframlagi sjóðfélaga rennur í frjálsa séreign sem hefur rýmri útborgunarreglur en tilgreind séreign. Til að mynda er frjáls séreign laus að fullu við 60 ára aldur en útgreiðslur úr tilgreindri séreign mega fyrst hefjast þegar 62 ára aldri er náð og dreifast að lágmarki fram að 67 ára aldri.

Hækkun á mótframlagi launagreiðanda í lífeyrissjóð má sjá í töflunni hér að neðan.

Gildistökudagur Framlag launagreiðanda Hækkun 
 1. júlí 2016  8,5%  0,5%
 1. júlí 2017  10,0%  1,5%
 1. júlí 2018  11,5%  1,5%
   Samtals  3,5%