Frétt

Ársuppgjör Frjálsa lífeyrissjóðsins 2016

Ársuppgjör Frjálsa lífeyrissjóðsins 2016

Helstu niðurstöður ársuppgjörs Frjálsa lífeyrissjóðsins voru eftirfarandi:

  • Hrein eign Frjálsa lífeyrissjóðsins í lok árs 2016 var 185,5 milljarðar kr.

  • Á árinu greiddu 20.934 sjóðfélagar 13,7 milljarða iðgjöld til sjóðsins og hefur fjöldi greiðandi sjóðfélaga og fjárhæð iðgjalda í sjóðinn aldrei verið hærri.

  • Styrking íslensku krónunnar og lækkun innlendra hlutabréfa hafði neikvæð áhrif á ávöxtun sjóðsins á árinu 2016 en langtímaávöxtun sjóðsins er góð. Nafnávöxtun séreignardeilda sjóðsins var á bilinu -2,0% til 4,3% og 5 ára meðal-nafnávöxtun 4,5%-8,7%. Nánari upplýsingar um ávöxtun sjóðsins er að finna hér.

  • Tryggingafræðileg staða tryggingadeildar sjóðsins er 1,9%. Staðan er sterk þrátt fyrir að hún hafi lækkað á milli ára.

  • Ný lán til sjóðfélaga námu um 9,4 milljörðum og tífölduðust á milli ára.

  • Frjálsi lífeyrissjóðurinn var í fyrsta sinn tilnefndur sem besti lífeyrissjóður Evrópu í af fagtímaritinu Investment Pension Europe (IPE). Frá árinu 2005 hefur Frjálsi lífeyrissjóðurinn fengið 10 verðlaun frá IPE sem er mesti fjöldi verðlauna sem íslenskum lífeyrissjóði hefur hlotnast.

Nánar um niðurstöður ársuppgjörs sjóðsins:


Áframhaldandi vöxtur Frjálsa lífeyrissjóðsins

Hrein eign til greiðslu lífeyris nam um 185,5 milljörðum í árslok og stækkaði sjóðurinn um 6,5% á milli ára. Stærð séreignadeilda var 130 milljarðar og stærð tryggingadeildar 55,5 milljarðar.

Sterk tryggingafræðileg staða
Tryggingafræðilega staða samtryggingarsjóðs lækkaði á árinu eftir að hafa hækkað síðustu sex ár þar á undan. Staðan er þó áfram traust því eignir umfram heildarskuldbindingar voru í lok árs 1,9% en lækkuðu um 3,2 prósentustig á milli ára. Breytingin skýrist af því að raunávöxtun var lægri en þau 3,5% sem miðað er við í tryggingafræðilegum forsendum og að teknar voru upp nýjar forsendur um mat á dánar- og lífslíkum vegna hækkandi meðalævi.

Nafnávöxtun tryggingadeildar var 2% og raunávöxtun -0,1%, Fimm ára meðalnafnávöxtun var 7,5% og fimm ára meðalraunávöxtun 4,8%.

Mikill vöxtur iðgjalda og lífeyris
Iðgjöld sjóðfélaga og launagreiðenda námu 13,7 milljörðum og jukust um 17,3% frá árinu áður. Lágmarksiðgjöld voru 11 milljarðar og viðbótariðgjöld 2,7 milljarðar.

Lífeyrisgreiðslur úr séreignadeildum og tryggingadeild voru um 2,8 milljarðar og hækkuðu um 23% á milli ára. Þar af nam lífeyrir séreignadeilda 2,3 milljörðum og tryggingadeildar 537 milljónum.

Iðgjöldum ráðstafað inn á höfuðstól lána eða til öflunar íbúðarhúsnæðis námu um 739 milljónum sem er 2,4% hækkun frá árinu 2015.

Tugir þúsunda sjóðfélaga velja að greiða í Frjálsa lífeyrissjóðinn

Heildarfjöldi sjóðfélaga sem á séreign eða réttindi í sjóðnum í árslok var 55.359 og fjölgaði þeim um 5,1%. Fjöldi sjóðfélaga sem valdi að greiða í sjóðinn á árinu 2016 var 20.934 sem er 7,5% hækkun frá árinu áður.

Fjöldi sjóðfélaga sem fékk greitt úr sjóðnum var 3.225 á árinu 2016 og fjölgaði þeim um 15,3% á milli ára.

Mikil aukning lífeyrissjóðslána
Mikil aukning var í lífeyrissjóðslánum til sjóðfélaga en þau eru með veði í fasteignum. Þau námu 9,4 milljörðum og tífölduðust á milli ára. Í lok árs 2016 voru lánin tæp 7% af hreinni eign sjóðsins en voru 2% í lok árs 2015.