Frétt

Greiðslumat á aðeins örfáum mínútum

Greiðslumat á aðeins örfáum mínútum

Nú býðst sjóðfélögum Frjálsa lífeyrissjóðsins að nýta sér nýja og einfalda leið fyrir einstaklinga til að fá greiðslumat á aðeins nokkrum mínútum. Á vef Arion banka, arionbanki.is, geta nú allir þeir sem eiga rafræn skilríki fengið sjálfvirkt greiðslumat á örskotsstundu. Þeir sem standast greiðslumatið þurfa því ekki að gera fyrirvara um greiðslumat þegar kauptilboð er lagt fram.

Með nýju greiðslumati Arion banka þurfa sjóðfélagar Frjálsa lífeyrissjóðsins ekki að safna saman launaseðlum, skattframtali og öðrum fylgiskjölum. Bankinn sér einfaldlega um að afla þessara upplýsinga rafrænt frá Creditinfo og RSK. Gagnaöflun og uppflettingar bankans byggjast á rafrænu samþykki umsækjenda.

Samhliða þessari breytingu mun kostnaður vegna greiðslumats lækka umtalsvert. Arion banki mun ekki innheimta sérstakt greiðslumatsgjald en umsækjendur þurfa að greiða þann kostnað sem til fellur vegna uppflettinga hjá þriðja aðila, m.a. í skuldastöðukerfi og ökutækjaskrá. Sá kostnaður er 3.200 kr. fyrir einstakling og 5.500 kr. fyrir hjón eða fólk í sambúð.