Frétt

Vextir verðtryggðra lána með breytilegum vöxtum lækka

Vextir verðtryggðra lána með breytilegum vöxtum lækka

Breytilegir vextir á nýjum verðtryggðum sjóðfélagalánum Frjálsa lífeyrissjóðsins lækka frá og með 15. febrúar nk. Vextir grunnlána, sem miða við 65% veðhlutfall, lækka úr 3,55% í 3,46% og vextir viðbótarlána, sem miða við 65%-75% veðhlutfall, lækka úr 4,20% í 4,11%.

Lækkunin gildir einnig um þau verðtryggðu lán með breytilegum vöxtum sem þegar hafa verið tekin og kveða á um að vextir breytist ársfjórðungslega.

Vextir verðtryggðra lána með föstum vöxtum eru í dag frá 3,75% og vextir óverðtryggðra lána með föstum vöxtum til þriggja ára í senn eru frá 5,90%.