Frétt

Fræðslufundur um útgreiðslur úr lífeyrissparnaði

Fræðslufundur um útgreiðslur úr lífeyrissparnaði

Að mörgu er að hyggja þegar kemur að útgreiðslu lífeyrissparnaðar og af því tilefni býður Arion banki til opins fræðslufundar. 

Á fundinum verður farið yfir helstu atriði sem ber að hafa í huga varðandi útgreiðslur lífeyrissparnaðar:

  • Reglur um útgreiðslur lífeyrissparnaðar
  • Skattaleg meðferð lífeyrissparnaðar
  • Samspil útgreiðslna úr lífeyrissjóðum og frá Tryggingastofnun

Fundurinn verður haldinn fimmtudaginn 24. nóvember kl. 17.30 í Arion banka, Borgartúni 19 og stendur yfir í rúmlega klukkustund.

Boðið verður upp á léttar kaffiveitingar.