Frétt

Yfirlit sjóðfélaga

Yfirlit sjóðfélaga

Yfirlit með hreyfingum fyrstu átta mánuði ársins hafa verið send sjóðfélögum. Við viljum vekja athygli á að jafnframt er hægt að nálgast yfirlitin í netbanka Arion banka. Einnig er sjóðfélögum bent á að hægt er að afþakka að fá heimsend yfirlit í netbanka Arion banka.

Við viljum hvetja sjóðfélaga til að lesa vel yfirlitin og ef iðgjöld vantar eða iðgjöld eru ekki í samræmi við launaseðla, að hafa tafarlaust samband við launagreiðanda eða lifeyristhjonusta@arionbanki.is. Verði vanskil á greiðslum iðgjalda í lífeyrissparnað geta dýrmæt lífeyrisréttindi glatast.