Frétt

Breyting á breytilegum vöxtum verðtryggðra lána

Breyting á breytilegum vöxtum verðtryggðra lána

Breytilegir vextir á nýjum verðtryggðum sjóðfélagalánum Frjálsa lífeyrissjóðsins breytast frá og með 15. maí nk. Vextir grunnlána, sem miða við 65% veðhlutfall, hækka úr 3,17% í 3,32% og vextir viðbótarlána, sem miða við 65%-75% veðhlutfall, hækka úr 3,82% í 3,97%.

Hækkunin gildir einnig um þau verðtryggðu lán með breytilegum vöxtum sem þegar hafa verið tekin og kveða á um að vextir breytist ársfjórðungslega.