Frétt

Fræðslufundur um útgreiðslur úr lífeyrissparnaði

Fræðslufundur um útgreiðslur úr lífeyrissparnaði

Að mörgu er að hyggja þegar kemur að útgreiðslu lífeyrissparnaðar og af því tilefni býður Arion banki til opins fræðslufundar sem ber yfirskriftina Greiðslur úr lífeyrissparnaði – hvað ber að hafa í huga?

Farið verður yfir helstu atriði sem ber að hafa í huga varðandi útgreiðslur lífeyrissparnaðar:

  • Reglur um útgreiðslur lífeyrissparnaðar
  • Skattalega meðferð lífeyrissparnaðar
  • Samspil útgreiðslna úr lífeyrissjóðum og frá Tryggingastofnun

Fundurinn verður haldinn í Arion banka, Borgartúni 19, þriðjudaginn 19. apríl kl. 17:30.

Fyrirlesari verður Helga Sveinbjörnsdóttir sérfræðingur hjá Eignastýringu Arion banka.

Fundurinn stendur yfir í rúmlega klukkustund og verður boðið upp á léttar kaffiveitingar.