Frétt

Breyting á framlagi til VIRK

Breyting á framlagi til VIRK

Alþingi hefur samþykkt ákvæði til bráðabirgða í lögum 60/2012 um atvinnutengda starfsendurhæfingu og starfsemi starfsendurhæfingarsjóða sem fela í sér að iðgjöld atvinnurekenda og þeirra sem stunda sjálfstæða starfsemi til starfsendurhæfingarsjóðs eru lækkuð úr 0,13% í 0,10% af iðgjaldsstofni. Ákvæðin koma til framkvæmda 1. janúar 2016 og gilda vegna áranna 2016 og 2017. Launagreiðendur eru beðnir um að taka tillit til breytinganna við skil á iðgjöldum til Frjálsa lífeyrissjóðsins.