Frétt

Fræðslufundur um útgreiðslur úr lífeyrissparnaði

Fræðslufundur um útgreiðslur úr lífeyrissparnaði

Að mörgu er að hyggja þegar kemur að útgreiðslu lífeyrissparnaðar og af því tilefni býður Arion banki til opins fræðslufundar sem ber yfirskriftina Greiðslur úr lífeyrissparnaði – hvað ber að hafa í huga?

Farið verður yfir helstu atriði sem ber að hafa í huga varðandi útgreiðslur lífeyrissparnaðar: 

  • Reglur um útgreiðslur lífeyrissparnaðar
  • Skattalega meðferð lífeyrissparnaðar
  • Samspil útgreiðslna úr lífeyrissjóðum og frá Tryggingastofnun

Fundurinn verður haldinn í Arion banka, Borgartúni 19, miðvkudaginn 25. nóvember nk. kl. 17:30.

Fyrirlesari verður Snædís Ögn Flosadóttir framkvæmdastjóri LSBÍ og EFÍA.

Fundurinn stendur yfir í rúmlega klukkustund og verður boðið upp á léttar kaffiveitingar.