Frétt

Fræðslufundur um útgreiðslur

Fræðslufundur um útgreiðslur

Að mörgu er að hyggja þegar kemur að útgreiðslu lífeyris og af því tilefni býður Arion banki þér til opins fræðslufundar sem ber yfirskriftina Greiðslur úr lífeyrissparnaði – hvað ber að hafa í huga?

Farið verður yfir helstu atriði sem ber að hafa í huga varðandi útgreiðslur lífeyrissparnaðar: 

  • Reglur um útgreiðslur lífeyrissparnaðar
  • Skattalega meðferð lífeyrissparnaðar
  • Samspil útgreiðslna úr lífeyrissjóðum og frá Tryggingastofnun

Fundurinn verður haldinn í Arion banka, Borgartúni 19, miðvikudaginn 20. maí nk. kl. 17:30.

Fyrirlesari verður Helga Sveinbjörnsdóttir sérfræðingur hjá Arion banka. 

Fundurinn stendur yfir í rúmlega klukkustund og verður boðið upp á léttar kaffiveitingar.