Frétt

Greiðslur viðbótarlífeyrissparnaðar inn á lán

Greiðslur viðbótarlífeyrissparnaðar inn á lán

Frjálsi lífeyrissjóðurinn hóf greiðslur viðbótarlífeyrissparnaðar inn á lán 28. nóvember sl. og hefur greitt inn á öll lán sem opnað hafa fyrir innáborganir sem þessar. Ekki er opið fyrir innborgun á öll lán á sama tíma svo fyrstu greiðslur munu halda áfram í desember.

Sjóðfélagar geta séð greiðslur úr viðbótarlífeyrissparnaði sínum á lífeyrisyfirliti í netbanka Arion banka. Jafnframt geta sjóðfélagar fylgst með greiðslum inn á lán í umsókn sinni á vef RSK http://leidretting.is.