Frétt

Framboð til stjórnar á ársfundi

Framboð til stjórnar á ársfundi

Frestur til að skila inn framboði í stjórn Frjálsa lífeyrissjóðsins fyrir ársfund rann út 22. apríl sl. Á ársfundinum 29. apríl. nk. verður kosið um tvo aðalmenn til tveggja ára og tvo varamenn til eins árs. 

Eftirtaldir hafa skilað inn framboðum í aðalstjórn:

Anna Sigríður Halldórsdóttir, hagfræðingur. Sérfræðingur hjá Hagstofu Íslands og stjórnarmaður í Frjálsa lífeyrissjóðnum.
Ásgeir Thoroddsen lögfræðingur. Lögmaður og stjórnarformaður í Frjálsa lífeyrissjóðnum.
Þorsteinn Magnússon, sjávarútvegsfræðingur og MSc í fjármálum fyrirtækja. Framkvæmdastjóri hjá Stormi Seafood ehf.

Tveir skiluðu inn framboðum í varastjórn og eru þeir því sjálfkjörnir:

Selma Svavarsdóttir, MBA. Verkefnastjóri á starfsmannasviði Landsvirkjunar
Tryggvi Þór Herbertsson, dr. í hagfræði. Fjármála- og rekstrarráðgjafi.