Frétt

Fræðslufundur um Frjálsa lífeyrissjóðinn 21. janúar - allir velkomnir

Fræðslufundur um Frjálsa lífeyrissjóðinn 21. janúar - allir velkomnir

Á fræðslufundinum verður m.a. fjallað um uppbyggingu sjóðsins, þjónustu við sjóðfélaga og ávöxtun. Áhersla verður lögð á þá þætti sem skapa sjóðnum sérstöðu umfram aðra lífeyrissjóði s.s. séreignarmyndun og erfanleika.

Frjálsi lífeyrissjóðurinn er einn elsti frjálsi lífeyrissjóður landsins, stofnaður árið 1978. Sjóðurinn, sem er í rekstri hjá Arion banka, er um 133 milljarðar að stærð og fjöldi sjóðfélaga er um 47 þúsund. Sjóðurinn er opinn þeim sem hafa frjálst val um í hvaða lífeyrissjóð þeir greiða skyldulífeyrissparnað og er jafnframt opinn öllum sem leggja fyrir í viðbótarlífeyrissparnað.

Fundurinn verður haldinn í Arion banka, Borgartúni 19, þriðjudaginn 21. janúar kl. 17:30. Fundurinn stendur yfir í um klukkustund og eru kaffiveitingar í boði.

Allir velkomnir. 
 
Skráning á fræðslufundinn