Frétt

Sjálfkjörið er í stjórn Frjálsa lífeyrissjóðsins

Sjálfkjörið er í stjórn Frjálsa lífeyrissjóðsins

Ragnar Birgisson hefur dregið til baka framboð sitt til stjórnar Frjálsa lífeyrissjóðsins á ársfundi sjóðsins á morgun, 25. apríl. Ásgeir Thoroddsen og Bjarnar Ingimarsson eru því sjálfkjörnir í stjórn sjóðsins til næstu tveggja ára. Selma Svavarsdóttir er einnig sjálfkjörin sem varamaður til eins árs, þar sem aðeins eitt framboð barst til varastjórnar.