11.06.2026

In­tro­duct­ory meet­ings on the pro­posed mer­ger of the Farm­ers' Pen­sion Fund and the Free Pen­sion Fund

Kynningarfundir fyrir sjóðfélaga Lífeyrissjóðs bænda um fyrirhugaða sameiningu við Frjálsa lífeyrissjóðinn voru haldnir á Hellu fimmtudaginn 4. júní og á Akureyri föstudaginn 5. júní. Fundirnir voru vel sóttir og gafst sjóðfélögum tækifæri til að kynna sér fyrirhugaða sameiningu, spyrja spurninga og ræða málið. Sjóðfélagar gátu einnig sótt fundinn á Hellu á Teams.

Á fundinum á Hellu fór Vala Valtýsdóttir, formaður stjórnar Lífeyrissjóðs bænda, yfir ástæður og aðdraganda þess að farið var í viðræður um sameiningu sjóðanna. Hún fjallaði um stöðu sjóðsins og tækifæri sem felast í sameiningu, auk þess sem hún fór yfir þann ábata sem sameiningin er talin geta haft fyrir sjóðfélaga, meðal annars með bættri þjónustu, aukinni stærðarhagkvæmni og styrkari rekstrargrunni. Á fundinum á Akureyri fór Einar Ófeigur Björnsson, stjórnarmaður yfir framangreint.

Arnaldur Loftsson, framkvæmdastjóri Frjálsa lífeyrissjóðsins, kynnti framkvæmd sameiningarinnar og útskýrði hvernig fyrirhugað er að henni verði háttað. Hann fór jafnframt yfir helstu staðreyndir um Frjálsa, starfsemi hans ásamt þjónustu og ráðgjöf sem stendur sjóðfélögum til boða.

Stjórnir beggja sjóða skrifuðu undir samrunasamning 19. maí sl. og telja sameininguna geta orðið til hagsbóta fyrir sjóðina og sjóðfélaga þeirra. Með sameiningunni er stefnt að því að efla rekstrargrundvöll sjóðanna, bæta þjónustu og styrkja eigna- og áhættustýringu til framtíðar.

Sameiningin verður lögð fram til staðfestingar á ársfundi Lífeyrissjóðs bænda þann 19. júní kl. 14 að Borgartúni 19. Gagnlegar upplýsingar um fyrirhugaða sameiningu má finna hér.

Share article:

facebookxmaillinkedin

More news

News overview
16 October 2026

Changes to interest rates on indexed loans

Breytilegir vextir verðtryggðra lána Frjálsa hækka úr 4,05% í 4,45% og tekur vaxtabreytingin gildi 15. nóvember nk.

Read more
15 October 2026

It is now possible to allocate private pension savings towards a housing loan

Applications have reopened for the tax-free allocation of supplementary pension savings under the general scheme. New legislation on the allocation of private pension savings toward housing loans took effect on 1 October 2026.

Read more
14 October 2026

Unpaid pension fund contributions for the year 2025

Frjálsi has now sent out payment requests and created claims in online banking for unpaid pension fund contributions for the year 2025. Pension fund contributions must be paid on all wage income/calculated remuneration, not just on base salary or primary employment.

Read more