Division of retirement pension
Married couples and cohabiting partners, both current and former, are permitted but not required to make agreements between themselves regarding the division of old-age pension.

Frjálsi is the largest private pension fund in the country and the majority of assets are the private savings of fund members.
Frjálsi differs from most other pension funds in that members are offered the option to allocate the majority of their mandatory savings into inheritable private savings.
Frjálsi Pension Fund is a fully licensed pension fund that was established in 1978.
Married couples and cohabiting partners, both current and former, are permitted but not required to make agreements between themselves regarding the division of old-age pension.

The split can be a maximum of 50% and must be mutual and equal, meaning that spouses/cohabiting partners must grant each other the same proportion of their rights/payments. The lower-income partner will then receive more than they otherwise would, and the higher-income partner will receive less than they otherwise would have. The split applies to old-age pension from the mutual insurance/tied personal savings, from the pension funds of both members and spouses; the overall status of pension rights from all pension funds can be viewed on My Pages and lífeyrisgattin.is. More about tied personal savings below.*
Agreements on the splitting of old-age pension do not affect other rights in pension funds, such as disability, spousal, and children's pension.
Markmið skiptingar er almennt að jafna heildarstöðu sjóðfélaga og maka til ellilífeyris. Eftir því sem réttindamunur er meiri, þykir almennt ríkari ástæða til skiptingar. En fleira getur komið til, aldursmunur getur haft áhrif á ákvörðun og sumir velta fyrir sér lífslíkum m.a. byggt á heilsufari og erfðum. Dæmi um annað sem getur haft áhrif á ákvarðanatöku er ævilangur makalífeyrir, skattahagræði og mögulegar greiðslur TR.
Hægt er að skipta áunnum réttindum og/eða framtíðarréttindum.
A. Skipting áunninna ellilífeyrisréttinda:
Sækja þarf um skiptingu áunninna réttinda fyrir 65 ára aldur og áður en lífeyristaka hefst. Aðeins í boði ef sýnt hefur verið fram á að sjúkdómar eða heilsufar dragi ekki úr lífslíkum, því þarf heilbrigðisvottorð beggja aðila, fyllt út af lækni, að fylgja samningi. Nær aðeins til ellilífeyrisréttinda sem aflað hefur verið í hjúskap, óvígðri sambúð eða staðfestri samvist. Skipting helst óbreytt komi til skilnaðar eða sambúðarslita og ekki er hægt að segja upp samningi.
B. Skipting framtíðar ellilífeyrisréttinda:
Sækja má um skiptingu framtíðarréttinda áður en lífeyristaka hefst, en ekki þarf að sækja um fyrir ákveðinn aldur. Skipting helst óbreytt komi til skilnaðar eða sambúðarslita, en hægt að segja upp með samþykki beggja aðila og allra lífeyrissjóða. Hefji sjóðfélagi og/eða maki greiðslur í aðra sjóði bera þau ábyrgð á að upplýsa sjóðina um skiptinguna.
C. Skipting ellilífeyrisgreiðslna:
Hægt er að skipta ellilífeyrisgreiðslum hafi ellilífeyrisréttindum ekki þegar verið skipt.
Sækja má um skiptingu ellilífeyrisgreiðslna þegar ellilífeyrisgreiðslur hefjast eða síðar. Samningar sem þessir eru almennt ekki gerðir í óvissu og eiga sérlega vel við ef tekjuhærri aðili dvelur á hjúkrunarheimili. Við skiptingu er ekki horft til sambúðartíma. Hægt er að segja upp samningi en uppsögn annars aðila er fullnægjandi. Samningur fellur úr gildi við andlát þess sem fyrr fellur frá og því er um að ræða tímabundna ráðstöfun.
*Ef tekjuhærri aðili er í Erfanlegu leiðinni og bundin séreign stór hluti af hans ellilífeyri myndi tekjulægri eignast meiri erfanlegan ellilífeyri við skiptingu en fá minni erfðaséreign við andlát, en gerst hefði án skiptingar. Sveigjanleiki í útgreiðslum til eftirlifandi maka yrði minni þar sem þrengri útgreiðslureglur gilda um ellilífeyri en erfðaséreign. Ef um stjúpbörn er að ræða getur skipting bundinnar séreignar jafnframt haft áhrif á skiptingu erfðaséreignar til barna. Mikilvægt er að aðilar átti sig á áhrifum skiptingar á útgreiðslur og erfanleika áður en skipting er gerð og taki upplýsta ákvörðun.
Skipting áunninna | Skipting framtíðar | Skipting | |
|---|---|---|---|
Hverju er skipt? | Samtryggingu/bundinni séreign, úr öllum lífeyrissjóðum aðila. | Samtryggingu/bundinni séreign, úr lífeyrissjóðum sem aðilar óska eftir. | Samtryggingu/bundinni séreign, úr lífeyrissjóðum sem aðilar óska eftir. |
Hvaða tímabil? | Nær til ellilífeyrisréttinda sem þegar hefur verið aflað við gerð samnings, á meðan aðilar hafa verið í hjúskap, óvígðri sambúð eða staðfestri samvist. | Nær til ellilífeyrisréttinda sem aflað er frá gerð samnings. | Nær til ellilífeyrisgreiðslna frá gerð samnings og til andláts. |
Hvenær sótt um? | Fyrir 65 ára aldur og áður en lífeyristaka hefst. | Áður en lífeyristaka hefst. | Þegar lífeyristaka hefst, eða síðar. |
Hvaða eyðublöð/fylgigögn? | Samningur um skiptingu ellilífeyrisréttinda. Hjónavígslu-, sambúðar- eða hjúskaparsöguvottorð. Heilbrigðisvottorð. | Samningur um skiptingu ellilífeyrisréttinda. | Samningur um skiptingu ellilífeyrisgreiðslna. |
Er hægt að segja upp? | Nei. | Já, en eingöngu með samþykki beggja aðila og allra lífeyrissjóða. | Já, uppsögn annars aðila er fullnægjandi. |
Hvað gerist við skilnað? | Endanleg ráðstöfun, skipting helst óbreytt. | Endanleg ráðstöfun, skipting helst óbreytt, en hægt að segja upp. | Tímabundin ráðstöfun, fellur ekki sjálfkrafa úr gildi við skilnað en hægt að segja upp. |
Hvað gerist við andlát? | Endanleg ráðstöfun, skipting helst óbreytt. | Endanleg ráðstöfun, skipting helst óbreytt ævilangt. | Tímabundin ráðstöfun, samningur fellur þegar úr gildi. |
Er hagkvæmt að gera samning um skiptingu? | Samningur er gerður í óvissu um útkomu, en vissu um jafnari hlut aðila. Falli tekjuhærri fyrr frá, var samningur hagkvæmur. | Samningur er gerður í óvissu um útkomu, en vissu um jafnari hlut aðila. Falli tekjuhærri fyrr frá, var samningur hagkvæmur. | Samningur er ekki gerður í óvissu um útkomu, ef tekjuhærri er t.d. á hjúkrunar¬heimili er samningur alla jafna hagkvæmur. |