Log in
Pension savings
Mandatory pension savingsSupplementary pension savingsSpecified private pension savingsDivision of old age pensionDivision of private pension savingsInvestment paths
Withdrawals
Old age pensionDisability pensionSpouse's pensionChild's pensionForeign nationalsCalculator
Fund op­er­a­tions
Key figuresInvestment returnsAsset allocationAnnual meeting documentsFinancial statementsList of fees and charges

Frjálsi is the largest private pension fund in the country and the majority of assets are the private savings of fund members.

Loans
Loans to fund membersLoan termsInterest rate trendsList of fees and chargesChanging a loan
Member services
AdviceArion appNew membersApplicationsFAQ
Employers
Paying contributionsSelf-employedNo-debt certificate

Frjálsi differs from most other pension funds in that members are offered the option to allocate the majority of their mandatory savings into inheritable private savings.

Operations
About FrjálsiBoard of DirectorsResponsible InvestmentsAgreement on operations and asset management
Regulatory framework
Articles of AssociationRules and PoliciesData Protection NoticeDisclaimersCookies
Publications
NewsArticlesReportsArticles published in the media

Frjálsi Pension Fund is a fully licensed pension fund that was established in 1978.

Do you want to become a fund member?

It only takes a moment to complete an application

Apply for supplementary pension savingsApply for mandatory savings
Services

All weekdays
+354 444 6090 - between 10-12 and 13-15
frjalsi@frjalsi.is

Shortcuts
LoansGet pension adviceMandatory pension savingsSupplementary pension savings Employers
Disbursements
PensionDisability pensionSpouse's pensionChild's pension
Social media
FacebookInstagramLinkedin

Frjálsi lífeyrissjóðurinn

Borgartúni 19, 105 Reykjavík

SSN: 581008 - 0150

Swift: ESJAISRE

LEI: RIL4VBPDB0M7Z3KXSF19

DisclaimersCookie settings
  1. About Frjálsi
  2. ▸
  3. Operations
  4. ▸
  5. Agreemet on operations and asset management

Samnin­gur um rek­stur og eignastýringu

Milli Frjálsa lífeyrissjóðsins og Arion banka hf.

2. júní 2025

Hús við fjöru

Samningur þessi er á milli Arion banka hf., kt. 581008-0150, Borgartúni 19, 105 Reykjavík (í samningi þessum einnig nefndur „Arion banki“ eða „bankinn“) annars vegar og Frjálsa lífeyrissjóðsins, kt. 600978-0129, Borgartúni 19, 105 Reykjavík (í samningi þessum einnig nefndur „lífeyrissjóðurinn“ eða „sjóðurinn“).

Þessi samningur varðar réttarsamband ofangreindra aðila vegna rekstrar Frjálsa lífeyrissjóðsins, eigna- og áhættustýringar Arion banka auk tilheyrandi þjónustu við sjóðfélaga lífeyrissjóðsins, allt í samræmi við nánari ákvæði samnings þessa og viðauka við hann, auk laga og reglna sem við geta átt hverju sinni.

Viðauki I - Kostnaður og þóknanir

Með vísan til gildandi samnings um rekstur og eignastýringu, milli Arion banka hf., kt. 581008-0150, Borgartúni 19, Reykjavík (í viðauka þessum einnig nefndur „Arion banki“ eða „bankinn“) annars vegar og Frjálsa lífeyrissjóðsins, kt. 600978-0129, Borgartúni 19, Reykjavík (í viðauka þessum einnig nefndur „lífeyrissjóðurinn“ eða „sjóðurinn“) hins vegar, skuldbindur lífeyrissjóðurinn sig til að greiða bankanum, eða öðrum þeim aðila sem bankinn vísar til, þóknanir fyrir rekstur og eignastýringu, eins og nánar er kveðið á um í viðauka þessum.

Viðauki 2 - Umboð vegna ráðstöfunar fjármálagerninga

Viðauki 3 - Frávikatilkynningar og framvinduskýrslur

Samningur þessi er viðauki við gildandi samning um rekstur og eignastýringu, milli Arion banka hf., kt. 581008-0150, Borgartúni 19, 105 Reykjavík (í viðauka þessum einnig nefndur „Arion banki“ eða „bankinn“) annars vegar og Frjálsa lífeyrissjóðsins kt. 600978-0129, Borgartúni 19, 105 Reykjavík (í viðauka þessum einnig nefndur „lífeyrissjóðurinn“ eða „sjóðurinn“) hins vegar.

Viðauki þessi varðar frávikatilkynningar og framvinduskýrslur í samræmi við leiðbeinandi tilmæli Fjármálaeftirlits Seðlabanka Íslands (í viðauka þessum nefnt „FME“) nr. 1/2019 vegna áhættu við rekstur upplýsingakerfa eftirlitsskyldra aðila.

Hér með veitir Frjálsi lífeyrissjóðurinn, kt. 600978-0129, Borgartúni 19, Reykjavík (hér eftir „umboðsgjafi“) forstöðumanni eignastýringar fagfjárfesta og umsjónarmönnum eignasafna hjá Arion banka hf., kt. 581008-0150, Borgartúni 19, Reykjavík (hér eftir „umboðshafi“, „Arion banki“ eða „bankinn“), fullt og ótakmarkað umboð til þess að ráðstafa fjármálagerningum og öðrum fjármunum sem umboðsgjafi hefur afhent eða mun afhenda bankanum og eru á eignasafni umboðsgjafa á hverjum tíma. Umboð þetta tekur m.a. til þess að Arion banka er heimilt að framselja fjármálagerninga og aðra fjármuni í nafni umboðsgjafa.

Umboð þetta nær til kaupa og sölu fjármálagerninga. Einnig til að innleysa og innheimta afborganir, arð, verðbætur og vexti af ofangreindum fjármálagerningum. Enn fremur nær umboð þetta til stofnunar sparifjárreiknings og/eða tékkareiknings í nafni umboðsgjafa hjá lánastofnun og til þess að leggja inn og taka út fé vegna kaupa á fjármálagerningum, sem og að ákveða vaxtakjör og aðra skilmála slíks reiknings. Inn á þann reikning skulu leggjast allar greiðslur sem umboðsgjafa berast, s.s. vegna sölu fjármálagerninga og arðgreiðslna. Af þeim reikningi skulu greiddar allar greiðslur er umboðsgjafa ber að inna af hendi, s.s. vegna kaupa á fjármálagerningum og greiðsla þóknana. Umboð þetta felur einnig í sér heimild til handa Arion banka til að stofna VS-reikning í nafni umboðsgjafa og til að skrá á þann reikning fjármálagerninga sem gefnir eru út á rafrænu formi (rafbréf) og teljast til þeirra fjármálagerninga er falla undir samning þennan. Arion banki skal hafa prókúru á slíka reikninga.

Umboð þetta nær enn fremur til þess að Arion banka er heimilt að gangast undir afleiðusamninga í nafni umboðsgjafa. Þá hefur bankinn samkvæmt umboði þessu heimild til að skuldbinda fumboðsgjafa til að fjárfesta í sjóðum, taka þátt í útboðum o.fl.

Arion banki greiðir allan kostnað sem til fellur vegna daglegs rekstrar sjóðsins, sbr. 1. gr. samningsins. Sjá þó samkomulag um greiðslu kostnaðar við starf áhættustjóra þess efnis að Frjálsi lífeyrissjóðurinn greiði Arion banka sérstaklega fyrir vinnu áhættustjóra í þágu lífeyrissjóðsins.

Lífeyrissjóðurinn greiðir fyrir eigin reikning útlagðan kostnað, svo sem vegna þjónustu þriðja aðila sem ekki telst vera vegna daglegs reksturs sjóðsins. Eftirtalinn kostnaður er því undanskilinn þeim kostnaði sem bankinn greiðir og greiðist af lífeyrissjóðnum:

  1. Kostnaður vegna ytri endurskoðunar lífeyrissjóðsins.

  2. Kostnaður vegna innri endurskoðunar lífeyrissjóðsins.

  3. Kostnaður vegna tryggingafræðilegrar athugunar.

  4. Stjórnarlaun og annar kostnaður vegna starfa stjórnar, s.s. starfsábyrgðartrygging.

  5. Framkvæmdastjóralaun og annar kostnaður vegna starfa framkvæmdastjóra, sem stjórn sjóðsins ákveður.

  6. Utanaðkomandi sérfræðiaðstoð samkvæmt beiðni sjóðsins.

  7. Óhjákvæmilegur utanaðkomandi sérfræðikostnaður sem er tilkominn vegna krafna opinberra aðila.

  8. Kostnaður vegna málaferla sem Frjálsi lífeyrissjóðurinn kann að eiga aðild að.

  9. Kostnaður vegna kaupa og sölu á fjármálagerningum.

  10. Kostnaður vegna vörslu fjármálagerninga.

  11. Skattar og opinber gjöld ef um það er að ræða.

  12. Kostnaður trúnaðarlækna við örorkumat sjóðfélaga

  13. Kostnaður sérfræðinga sem rekstraraðili þarf að leita til við útreikning lífeyrisúrskurða

  14. Kostnaður vegna ársfundar lífeyrissjóðsins eða aukaársfundar, þ.m.t. auglýsingar.

  15. Kostnaður innheimtufyrirtækja við innheimtu iðgjalda sem ekki greiðast af skuldara og falla því á sjóðinn. Arion banki greiðir hinsvegar innheimtukostnað sem er tilkominn vegna mistaka bankans.

  16. Annar kostnaður sem stjórn sjóðsins ákveður að stofna til og fellur ekki undir daglegan rekstur sjóðsins.

Ef upp koma vafamál um einstaka aðra kostnaðarliði skulu samningsaðilar leitast við að ná fram sameiginlegri niðurstöðu.

Lífeyrissjóðurinn greiðir árlega þóknun fyrir rekstur og eignastýringu sjóðsins.

Lífeyrissjóðurinn greiðir árlega hlutfallsþóknun sem nemur 0,140126% á ári. Mánaðarleg hlutfallsþóknun er 0,011677% og er reiknuð út frá hreinni eign sjóðsins í lok mánaðar og skuldfærð mánaðarlega.

Ef veruleg breyting verður á forsendum fyrir útreikningum á þóknun fyrir rekstri og eignastýringu skal hvor aðili eiga rétt á að teknar verði upp viðræður um þau mál.

Til nánari útskýringar:

Umsýsluþóknun sjóðsins skiptist í fasta þóknun, sem breytist í hlutfalli við breytingar á launavísitölu, og hlutfallsþóknun. Ástæðan fyrir því að hluti þóknunarinnar er föst, er að ef sjóðurinn stækkar meira en launavísitalan þá lækkar umsýsluþóknunin sem hlutfall af eignum sjóðsins og kemur þannig sjóðfélögum til góða. Frá því að þessu fyrirkomulagi var komið á árið 2012 hefur umsýsluþóknunin sem hlutfall af eignum sjóðsins farið lækkandi. Með hlutfallsþóknuninni er hinsvegar leitast við að sameina hagsmuni sjóðsins og rekstraraðilans um stækkun sjóðsins. Upplýsingar um umsýsluþóknunina er jafnframt að finna í ársreikningi sjóðsins og á vefsíðu sjóðsins.

Lífeyrissjóðurinn greiðir vörsluþóknun sem tekur mið af samkomulagi Arion banka og lífeyrissjóðsins og er þóknunin reiknuð og skuldfærð mánaðarlega.

Til viðbótar við önnur gjöld samkvæmt samningi þessum greiðir lífeyrissjóðurinn ársfjórðungslega þóknun til bankans fyrir aðgang að umfangsmiklu úrvali af vörum, þjónustu og afsláttarkjörum sem Arion banki hefur samið um við erlenda rekstraraðila sjóða sem dreifingaraðili. Þóknunin skal nema 35% af heildarafslætti lífeyrissjóðsins í þessum sjóðum, sbr. 36. gr. og skuldfærð ársfjórðungslega.

Heimilt er að taka þóknun við flutning séreignar til annarra vörsluaðila og á milli fjárfestingarleiða og skulu Arion banki og lífeyrissjóðurinn semja um fjárhæð þóknunarinnar. Þóknunin skal renna til bankans til að mæta kostnaði hans við umsýslu flutningsins.

Til nánari útskýringar:

Samningsákvæðið fjallar um þá þóknun sem stjórn ákveður að innheimt skuli vegna flutnings séreignar frá sjóðnum. Ástæða þess að þóknunin skiptist síðan á milli rekstraraðilans og sjóðsins er sú að rekstraraðili verður fyrir kostnaði við þá umsýsluvinnu að inna af hendi flutningana og lífeyrissjóðurinn getur orðið fyrir viðskiptakostnaði ef selja þarf eignir vegna flutningsbeiðnanna.

Arion banki tekur að sér innheimtu á iðgjaldi fyrir VIRK – Starfsendurhæfingarsjóð (hér eftir nefndur „VIRK“) f.h. lífeyrissjóðsins, samkvæmt samningi milli VIRK og lífeyrissjóðsins, dags. 17. janúar 2017. Arion banki tekur einnig að sér að skila umræddum iðgjöldum til VIRK í samræmi við áðurgreindan samning milli VIRK og lífeyrissjóðsins.

Umsýsluþóknun sjóðsins vegna samningsins við VIRK skal dregin frá þeim greiðslum sem skilað er til VIRK. Umsýsluþóknunin skal renna til Arion banka til að mæta kostnaði bankans við innheimtu iðgjalda fyrir VIRK.

Lífeyrissjóðurinn felur Arion banka að ganga til samninga við rekstrarfélög eða sjóðastýringar¬fyrirtæki um ávöxtun á eignum sjóðsins. Við gerð slíkra samninga skuldbindur bankinn sig til þess að hafa hagsmuni lífeyrissjóðsins að leiðarljósi og leita hagstæðustu kjara fyrir sjóðinn með tilliti til þeirrar þjónustu sem veitt er.

Arion banka er heimilt að skuldfæra reikninga lífeyrissjóðsins hjá bankanum vegna þóknana samkvæmt samningi þessum.

Öllu framangreindu til staðfestingar er skjal þetta undirritað með fullgildri rafrænni undirritun, af hálfu þess/þeirra aðila sem heimild hafa til þess að skuldbinda lögaðila. Rafræn undirritun skjalsins er í samræmi við lög nr. 55/2019 um rafræna auðkenningu og traustþjónustu fyrir rafræn viðskipti.

Samningurinn og viðauki þessi mynda eina órjúfanlega heild.

Viðauki þessi gildir frá og með undirritunardegi. Skal hann gilda svo lengi sem samningurinn er í gildi. Skal uppsögn á samningnum einnig taka til viðauka þessa. Uppsögn á viðaukanum tekur þó ekki til uppsagnar á samningnum. Heimilt er að segja upp viðauka þessum án fyrirvara. Um breytingar og uppsögn viðaukans fer að öðru leyti samkvæmt 34. gr. samningsins, eftir því sem við á.

Sjóðurinn er eftirlitsskyldur aðili sbr. 10. tölul. 1. mgr. 2. gr. laga nr. 87/1998 um opinbert eftirlit með fjármálastarfsemi. Eftirlitsskyldum aðilum ber skv. 47. og 48. lið leiðbeinandi tilmæla nr. 1/2019 að rafrænt skrá frávikatilkynningar og senda til FME í gegnum þjónustugátt FME svo fljótt sem verða má, þó eigi síðar en 4 tímum eftir að frávik uppgötvast. Framvinduskýrslum skv. 49. gr. leiðbeinandi tilmæla nr. 1/2019 skal skila svo fljótt sem verða má, þó eigi síðar en 3 dögum eftir að frávik uppgötvast.
Í samræmi við leiðbeiningar FME um rafrænar frávikatilkynningar eru tilkynningar takmarkaðar við meiri háttar frávik eins og þau eru skilgreind í leiðbeiningum FME um tilkynningar frávika og viðmiðunarreglum Evrópsku bankaeftirlitsstofnunarinnar (EBA/GL/2017/10).

Með viðauka þessum tekur Arion banki, sem þjónustuveitandi, að sér að sinna framangreindri tilkynningarskyldu og skýrslugjöf til FME fyrir hönd sjóðsins með vísan til heimildar í leiðbeiningum FME um tilkynningar frávika.

Samningurinn og viðauki þessi mynda eina órjúfanlega heild.

Viðauki þessi gildir frá og með undirritunardegi. Skal hann gilda svo lengi sem samningurinn er í gildi. Skal uppsögn á samningnum einnig taka til viðauka þessa. Uppsögn á viðaukanum tekur þó ekki til uppsagnar á samningnum. Heimilt er að segja upp viðauka þessum án fyrirvara. Um breytingar og uppsögn viðaukans fer að öðru leyti samkvæmt 34. gr. samningsins, eftir því sem við á.

Samningur um rekstur og eignastýringu

1. Kafli - Rekstur Frjálsa lífeyrissjóðsins (5)
​

Frjálsi lífeyrissjóðurinn veitir iðgjöldum sjóðfélaga og rétthafa viðtöku og ráðstafar þeim fjármunum í samræmi við fyrirfram ákveðna fjárfestingarstefnu sjóðsins en hún er byggð á lögum um skyldutryggingu lífeyrisréttinda og starfsemi lífeyrissjóða nr. 129/1997 og samþykkt af stjórn sjóðsins.

Framkvæmdastjóri sjóðsins, sem stjórn ræður til starfa (hér eftir nefndur „framkvæmdastjóri“), stýrir daglegum rekstri sjóðsins. Arion banka ber að tryggja að framkvæmdastjóri Frjálsa lífeyrissjóðsins njóti þeirra aðgangsheimilda og hverrar þeirrar aðstöðu sem nauðsynleg er til að framkvæmdastjóra sé unnt að inna starfsskyldur sínar af hendi fyrir hönd sjóðsins á starfsstöð bankans að Borgartúni 19, 105 Reykjavík. Þá getur framkvæmdastjóri enn fremur þurft að sinna starfsskyldum á öðrum starfsstöðvum bankans, allt eftir aðstæðum á hverjum tíma. Stjórn sjóðsins er heimilt að leita eftir samkomulagi við bankann um umsýslu vegna atriða sem leiða af ráðningarsambandi sjóðsins og framkvæmdastjóra, svo sem launaumsýslu, hugsanlegan kostnað vegna fartölvu og farsíma til afnota, aðrar eða frekari launagreiðslur sjóðsins til framkvæmdastjóra allt samkvæmt nánari ákvörðun stjórnar sjóðsins.

Arion banki skal uppfylla þær skyldur sem kveðið er á um í þessum samningi. Sjóðurinn skal á hverjum tíma starfa eftir lögum um skyldutryggingu lífeyrisréttinda og starfsemi lífeyrissjóða nr. 129/1997, samþykktum sem stjórn sjóðsins hefur samþykkt svo og öðrum lögum, reglugerðum, reglum stjórnvalda og eftir atvikum leiðbeinandi tilmælum Fjármálaeftirlits Seðlabanka Íslands.

Arion banki skal tryggja, nema annað leiði af samningi þessum eða viðaukum hans, að þeir starfsmenn bankans sem sinna þjónustu við Frjálsa lífeyrissjóðinn og sjóðfélaga hans fylgi fyrirmælum framkvæmdastjóra í störfum sínum vegna daglegs reksturs lífeyrissjóðsins og/eða ákvörðunum stjórnar, enda varði slík fyrirmæli verkefni sem falla innan samnings þessa. Forstöðumaður eignastýringar fagfjárfesta og umsjónarmenn eignasafna hjá Arion banka annast stýringu eigna lífeyrissjóðsins. Framkvæmdastjóri tekur ekki eignastýringarákvarðanir eða ákvarðanir sem tengjast stýringu safna sjóðsins. Að öðru leyti skulu framangreindir aðilar í starfi sínu fara eftir þeim fyrirmælum sem framkvæmdastjóri sjóðsins hefur gefið.

Með þessum samningi tekur Arion banki að sér framkvæmd daglegs reksturs sjóðsins í samráði við, og, eftir atvikum, eftir fyrirmælum framkvæmdastjóra sjóðsins. Í því felst að Arion banki skal annast:

  • Sölu og markaðsmál

  • Ráðgjöf og þjónustu til sjóðfélaga og launagreiðenda (þ.m.t. gerð vefsíðu og annarra rafrænna lausna)

  • Fjárhagsbókhald, gengisútreikning og skýrslugjöf til eftirlitsaðila, opinberra aðila og endurskoðanda

  • Bakvinnslu (skráning og breyting samninga, skráning iðgjalda, útgreiðslur, innheimta iðgjalda, útsending yfirlita)

  • Eignastýringu

  • Gæða og áhættustýringu (þ.m.t. skjalakerfi)

  • Regluvörslu (þ.m.t. persónuverndarfulltrúi)

  • Rekstur og þróun upplýsingakerfa

  • Undirbúning stjórnar- og ársfunda

  • Umsýslu með sjóðfélagalánum

  • Önnur verkefni sem nauðsynleg eru til reksturs lífeyrissjóðs og greinir í samningi þessum og er ekki þar sérstaklega undanskilið

Verkefni sem ekki falla undir framangreint eða teljast ekki hluti af daglegum rekstri sjóðsins skulu samningsaðilar taka upp og semja um ef til viðbótarkostnaðar kemur.

Arion banki skal innheimta iðgjöld og skuldabréf í eigu sjóðsins, greiða lífeyri og annast ráðgjöf og upplýsingagjöf til sjóðfélaga og rétthafa í samræmi við samþykktir sjóðsins.

Arion banki skal hafa eftirlit með verðbréfaviðskiptum þeirra starfsmanna bankans sem koma að ákvörðunum um eða framkvæmd viðskipta sjóðsins með fjármálagerninga með einhverjum hætti og, eftir atvikum, upplýsa stjórn sjóðsins um brot gegn reglum bankans um verðbréfaviðskipti starfsmanna.

Arion banki tekur að sér að sinna skyldum persónuverndarfulltrúa skv. lögum nr. 90/2018.

Arion banki skal koma að vinnu stjórnar lífeyrissjóðsins við mótun á tryggu eftirlitskerfi með áhættu Frjálsa lífeyrissjóðsins með hliðsjón af ákvæðum laga um skyldutryggingu lífeyrisréttinda og starfsemi lífeyrissjóða nr. 129/1997 og reglugerðar nr. 590/2017 um eftirlitskerfi með áhættu lífeyrissjóða.

Arion banki skal annast afgreiðslu, innheimtu og þjónustu við útlán til sjóðfélaga lífeyrissjóðsins (hér eftir nefnd „sjóðfélagalán“).

Auk þess sem að ofan greinir tekur Arion banki að sér að veita lífeyrissjóðnum, án sérstaks endurgjalds, sérfræðiþjónustu á samningstímanum. Þjónustan felur m.a. í sér eftirfarandi:

  • Ráðgjöf við endurskoðun og mótun fjárfestingarstefnu, áhættustefnu, áhættustýringarstefnu, stefnu um ábyrgar fjárfestingar, hluthafastefnu og eftir atvikum nýjar stefnur sem stjórn setur.

  • Ráðgjöf eignastýringar við mat á fjárfestingakostum.

  • Reglulega skýrslugjöf til stjórnar sjóðsins.

  • Upplýsingafundi eftir því sem við á.

  • Sérfræðiaðstoð við gerð innri og ytri reglna sjóðsins og stjórnar og breytinga á þeim.

  • Sérfræðiaðstoð við samninga sem snúa að daglegum rekstri sjóðsins.

  • Aðra tilfallandi sérfræðiaðstoð eftir nánara samkomulagi.

Arion banki skal upplýsa lífeyrissjóðinn um framvindu samnings þessa, sbr. nánari ákvæði samningsins. Þá skal Arion banki sjá til þess að eftirfarandi kröfum sé fullnægt á hverjum tíma, allt samkvæmt nánari ákvæðum samnings þessa:

  • að bankinn og starfsmenn bankans hafi til að bera hæfni, getu og öll leyfi sem krafist er samkvæmt lögum og reglum sem um lífeyrissjóðinn gilda til að inna af hendi útvistuð verkefni af áreiðanleika og fagmennsku,

  • að bankinn inni af hendi útvistuð verkefni í samræmi við lög með skilvirkum hætti og hafi fullnægjandi eftirlit með framkvæmd útvistaðra verkefna og stýri ennfremur á viðunandi hátt og í fullu samræmi við þau lög og þær reglur sem um starfsemina gilda á hverjum tíma þeim áhættum er tengjast hinum útvistuðu verkefnum,

  • að lífeyrissjóðurinn sé upplýstur um hvers kyns þróun sem gæti haft veruleg áhrif á getu bankans til að inna af hendi útvistuð verkefni á skilvirkan hátt og í samræmi við gildandi lög,

  • og að þagnarskyldu sé gætt í samræmi við 32. gr. laga nr. 129/1997 um skyldutryggingu lífeyrisréttinda og starfsemi lífeyrissjóða og 58. gr. laga nr. 161/2002 um fjármálafyrirtæki og að trúnaðarupplýsingar sem tengjast lífeyrissjóðnum eða sjóðfélaga hans séu verndaðar á fullnægjandi hátt.

Arion banki skal upplýsa stjórnarformann og framkvæmdarstjóra um fyrirhugaðar starfsmannabreytingar er varða lykilstarfsmenn nema aðstæður séu metnar þess eðlis að þær leyfi ekki slíkt. Skal Arion þá gera grein fyrir slíku mati eftir á. Lykilstarfsmenn eru skilgreindir samkvæmt samningi þessum þeir sem hafa starfað að málefnum sjóðsins í núverandi stöðu í að lágmarki þrjú ár og sinna störfum forstöðumanns eignastýringar fagfjárfesta, forstöðumanns þróunar og reksturs, áhættustjóra, senior sjóðsstjóra innlendra skuldabréfa og ábyrgðaraðili sölu- og markaðsmála. Ef Arion gerir skipulagsbreytingar skulu sömu ákvæði gilda um þessa lykilstarfsmenn ef þeir sinna áfram sambærilegum störfum fyrir lífeyrissjóðinn.

Arion banki skal tryggja að framangreindir lykilstarfsmenn hafi fullnægjandi hæfi til að sinna starfi sínu. Aðilar eru sammála um að um hæfi framangreindra lykilstarfsmanna skal fara skv. lögum, reglugerðum og reglum eða starfslýsingum bankans um viðkomandi störf. Frjálsi getur óskað eftir breytingum á starfslýsingum hjá þeim starfsmönnum sem koma að starfsemi sjóðsins.

Arion banki skuldbindur sig til þess að beita ekki samkeppnisákvæðum að undangengnum uppsagnartíma í ráðningarsamningum gagnvart starfsmönnum sem unnið hafa fyrir sjóðinn í að lágmarki þrjú ár ef sjóðurinn býður þeim starfsmönnum starf hjá sjóðnum.

Arion banki sinnir allri þjónustu við sjóðfélaga og launagreiðendur í samræmi við lög.

Í því felst meðal annars ráðgjöf og sala á lífeyrissparnaði og önnur þjónusta við sjóðfélaga í samræmi við markaðs-, sölu- og þjónustustefnu, sem sjóðurinn setur sér og er uppfærð árlega.

Arion banki annast markaðssetningu sjóðsins, með auglýsingum og öðru markaðsefni með aðkomu utanaðkomandi aðila eftir því sem við á, í samræmi við markaðs-, sölu- og þjónustustefnu hvers árs og/eða fyrirmæla framkvæmdastjóra. Ráðgjafar kynna sjóðinn fyrir tilvonandi sjóðfélögum með það að markmiði að greiðandi sjóðfélögum fjölgi ár frá ári. Arion banki sér um rekstur og áframhaldandi þróun á vefsíðu sjóðsins og rafrænum sjálfsafgreiðsluleiðum með það að leiðarljósi að standast samanburð við aðra lífeyrissjóði og vera til hagsbóta fyrir sjóðfélaga og launagreiðendur. Sjóðfélagar hafa aðgang að viðeigandi aðgerðum og upplýsingum um lífeyrissparnað sinn á Mínum síðum/sjóðfélagavef og/eða í Arion appinu/Netbanka eftir atvikum eða öðrum tæknilegum lausnum sem bankinn býður upp á. Þá hafa launagreiðendur aðgengi að stöðu, yfirlitum, rafrænum skilum o.fl. á launagreiðendavef. Lögð er áhersla á að bjóða rafræna sjálfsafgreiðslu þeim sem það kjósa og ennfremur gott aðgengi að persónulegri þjónustu fyrir þá sem þess óska. Umfram allt er áhersla á faglega ráðgjöf um allt sem varðar lífeyrissparnað, hvenær sem er á lífsleiðinni, með langtímasamband að markmiði. Því eru í boði fjölbreyttar þjónustuleiðir með það að markmiði að allir finni þjónustuleið við sitt hæfi.

Arion banki ber ábyrgð á gæðastýringu sjóðsins og sér m.a. um að verkferlar sjóðsins séu skráðir og vistaðir með skipulegum hætti. Kvartanir skulu skráðar til að auðvelda eftirfylgni með úrbótum auk þess sem störf og ábyrgð starfsmanna eru skilgreind í starfslýsingum sem eru uppfærðar eftir þörfum.

Árlega er framkvæmt áhættumat ásamt úttektum á verkferlum. Þá inniheldur gæðakerfið árangurs- og eftirlitskerfi sem auðveldar eftirlit með fjárfestingarstefnu og að lagalegum skilyrðum sem sjóðurinn starfar eftir sé fullnægt.

Arion banki skal sjá til þess að öll nauðsynleg upplýsingatæknikerfi séu til staðar við rekstur sjóðsins, þ.m.t. skjalakerfi fyrir stjórn sjóðsins.

Bankinn er upplýstur um viðeigandi kröfur varðandi rekstur upplýsingakerfa eftirlitsskyldra aðila, m.a. leiðbeinandi tilmæli Fjármálaeftirlits Seðlabanka Íslands (hér eftir „Fjármálaeftirlitið“ eða „FME“) nr. 1/2019 (hér eftir tilmæli 1/2019) og skal framfylgja þeim í umboði sjóðsins.

Bankinn skal sjá til þess að varðveisla og meðhöndlun gagna sé í samræmi við tilmæli 1/2019 en það felur m.a. í sér að gerð séu öryggisafrit af gögnum og upplýsingakerfum. Bankinn og sjóðurinn skuldbinda sig til að koma á og viðhalda viðbúnaðaráætlun til að geta endurheimt gögn og hafa reglubundnar prófanir á afritunarbúnaði þar sem slíkt er nauðsynlegt m.t.t. þjónustunnar sem útvistað er.

Sjóðurinn ber skv. 47. og 48. lið tilmæla 1/2019 að rafrænt skrá frávikatilkynningar og senda til FME í gegnum þjónustugátt FME svo fljótt sem verða má, þó eigi síðar en 4 tímum eftir að frávik uppgötvast. Samkvæmt 49. lið tilmælanna skal framvinduskýrslum skila svo fljótt sem verða má, þó eigi síðar en 3 dögum eftir að frávik uppgötvast. Í samræmi við leiðbeiningar FME um rafrænar frávikatilkynningar eru tilkynningar takmarkaðar við meiri háttar frávik eins og þau eru skilgreind í leiðbeiningum FME um tilkynningar frávika og viðmiðunarreglum Evrópsku bankaeftirlitsstofnunarinnar (EBA/GL/2017/10). Bankinn, sem þjónustuveitandi, tekur að sér að sinna framangreindri tilkynningarskyldu og skýrslugjöf til FME fyrir hönd sjóðsins með vísan til heimildar í leiðbeiningum FME um tilkynningar frávika.

Í samráði við framkvæmdastjóra er Arion banka heimilt að útvista hluta af rekstri sjóðsins til þriðja aðila. Bankinn skal ekki keðjuútvista hýsingu á upplýsingakerfum og gögnum fyrir hönd sjóðsins lengra en til þriðja aðila. Þá skal almennt í þessum tilvikum ekki keðjuútvista út fyrir Evrópska efnahagssvæðið og þá aðeins að því tilskildu að lagaumhverfi í því ríki sem keðjuútvistað er til standi ekki í vegi fyrir störfum eftirlitsaðila.

Arion banki skal upplýsa stjórn lífeyrissjóðsins um fyrirhugaða útvistun og kynna stjórninni fyrirliggjandi samning eða samningsdrög um útvistunina. Skal stjórn lífeyrissjóðsins þá hafa heimild til þess að hafna útvistunarsamningi við þriðja aðila. Til nánari skýringar þá getur stjórn hafnað því að ákveðinni þjónustu sé útvistað, að henni sé útvistað til tiltekinna aðila og þá hefur stjórn heimild til þess að hafna sjálfum útvistunarsamningnum eða drögum að slíkum samningi.

Komi til þess að stjórn lífeyrissjóðsins hafni þegar gerðum samningi um útvistun, sem gerður hefur verið við þriðja aðila, skal bankinn leitast við að fella niður skuldbindingar vegna hans eins fljótt og auðið er, að teknu tilliti til uppsagnafresta viðkomandi samninga.

Til nánari útskýringar:

Með útvistun í tilviki lífeyrissjóða er átt við samninga milli eftirlitsskyldra aðila og þriðja aðila, þ.e. útvistunaraðila, um að útvistunaraðili taki að sér verkefni eða þjónustu sem almennt falla innan verksviðs hins eftirlitsskylda aðila. Með þessu samningsákvæði veitir lífeyrissjóðurinn rekstraraðila tilteknar heimildir til að útvista hluta af þeirri þjónustu sem sjóðnum er veitt með samningnum. Algeng dæmi um útvistun hjá eftirlitsskyldum aðilum lúta til að mynda að rekstri ýmissa upplýsingatæknikerfa og í tilviki lífeyrissjóða er ekki óalgengt að þriðja aðila sé falið að sinna þróun tölvukerfa sem snúa að iðgjalda- og lífeyrisgreiðslukerfum. Fjármálaeftirlitið hefur gefið út sérstök tilmæli sem fjalla um og varpa ljósi á þau atriði og umgjörð sem eftirlitsskyldir aðilar eiga að gæta að við útvistun verkefna sem og upplýsingaskyldu við eftirlitið vegna útvistunar verkefna og breytinga á þeirri útvistun.