06.11.2020

Aukin up­plýsin­gagjöf Frjálsa lífeyr­is­s­jóðsins

Tímarnir breytast og krafa sjóðfélaga um aukið gagnsæi og greiðari aðgang að upplýsingum með því. Frjálsi lífeyrissjóðurinn hefur haft það að markmiði að taka virkan þátt í þessari vegferð. Sjóðurinn hefur til að mynda birt rekstrarsamningsjóðsins við rekstraraðilann Arion banka, framkvæmd hluthafastefnu er aðgengileg á heimasíðu sjóðsins ásamt því að Frjálsi heldur úti lykilupplýsingasíðuþar sem stöðugt er unnið að bættara aðgengi sjóðfélaga að lykilupplýsingum úr starfsemi sjóðsins. Eftir efnahagshrunið 2008 var Frjálsi fyrsti sjóðurinn til að birta ársfjórðungslega sundurliðun á einstökum fjárfestingum sjóðsins. Ennfremur má nefna fjölda greina sem ritaðar hafa verið um starfsemi og fjárfestingar sjóðsins, nú síðast umfjöllun um sérhæfðar fjárfestingar sjóðsins.

Nú hefur Frjálsi tekið frekari skref í bættri upplýsingagjöf sem er rakið hér að neðan:

Kostnaður

Fyrir sjóðfélaga skiptir langtímaávöxtuneftir kostnað mestu máli en ekki ávöxtun einstakra ára. Á vef Landssamtaka lífeyrissjóða er að finna samanburð á ávöxtun allra lífeyrissjóða til 5 og 10 ára. Kostnaður við starfsemi sjóðsins skiptir þó vissulega miklu máli og er honum gjarnan skipt í rekstrarkostnað, bein fjárfestingargjöld og áætluð fjárfestingargjöld. Rekstrarkostnaður er t.d. 60% af umsýsluþóknun til Arion, launakostnaður, lögbundin gjöld o.s.frv. Bein fjárfestingargjöld eru vörsluþóknun, kostnaður vegna verðbréfaviðskipta og 40% af umsýsluþóknuninni. Áætluð fjárfestingargjöld endurspegla svo kostnað við rekstur sjóða sem lífeyrissjóðurinn fjárfestir í hjá sjóðastýringafyrirtækjum. Yfirlit yfir beinan kostnað (rekstrarkostnaður, bein fjárfestingargjöld) og óbeinan kostnað (áætluð fjárfestingargjöld) Frjálsa hafa nú verið birt á lykilupplýsingasíðuá vefsíðu sjóðsins.

Viðskipti við verðbréfamiðlanir

Í viðskiptum með verðbréf fer Frjálsi eftir bestu framkvæmd viðskipta (e. Best execution) þar sem markmiðið er að tryggja að bestu kjara sé ætíð leitað fyrir hönd sjóðsins. Opið er fyrir viðskipti við allar verðbréfamiðlanir landsins og er mismunandi hver er hlutdeild hverrar miðlunar af heildarviðskiptum sjóðsins með einstök verðbréf. Upplýsingar um viðskipti við miðlanir eru nú aðgengilegar á vefsíðu sjóðsins.

Velta

Frjálsi er á íslenskan mælikvarða ungur sjóður þar sem fjöldi greiðandi sjóðfélaga og iðgjöld eru hlutfallslega há. Iðgjöldin þarf að ávaxta með fjárfestingum en breytingar á fjárfestingarstefnu fela einnig í sér veltu. Það er þó ekki þannig að greiða þurfi þóknanir fyrir alla veltu. Yfirleitt þarf Frjálsi ekki að greiða þóknanir þegar hann kaupir eða selur hlutdeildarskírteini í sjóðum hjá sjóðastýringarfélögum. Á heimasíðu Frjálsa hafa nú verið birtar upplýsingar um veltutölur sjóðsins, sundurliðað eftir því hvort þær feli í sér þóknanir eða ekki, ásamt því að birta upplýsingar um fjárhæð þóknana.

Fjárfestingar tengdar rekstraraðila

Frjálsi veitir í dag eignastýringu Arion umboð til að eiga viðskipti fyrir hönd sjóðsins í samræmi við þá fjárfestingarstefnu sem stjórn sjóðsins skilgreinir. Af þessu er ljóst að Arion ber margþætta ábyrgð í starfi sínu fyrir hönd Frjálsa. Í starfsemi Arion er til viðbótar við eignastýringu rekin fjölþætt fjármálastarfsemi þar sem snertifletir eru margir, hætta er á hagsmunaárekstrum og því mikilvægt að gera ráðstafanir til að þeir valdi ekki Frjálsa tjóni. Í þessu sambandi upplýsir Arion stjórn sjóðsins mánaðarlega um eignastöðu og viðskipti með verðbréf og aðrar afurðir tengdum bankanum og dótturfélögum. Á heimasíðu sjóðsins er nú birt árlegt yfirlit sambærilegt því sem lagt er fyrir stjórn sjóðsins.

Að lokum

Aukinn áhugi, þekking og vitund hjá sjóðfélögum er fagnaðarefni. Mikið hefur áunnist í upplýsingagjöf og gagnsæi hjá Frjálsa síðustu ár en alltaf má þó gera betur og stefnir sjóðurinn ótrauður á að halda áfram á þeirri vegferð. Það er von Frjálsa að þessar viðbætur mælist vel fyrir hjá núverandi og tilvonandi sjóðfélögum og að upplýsingarnar komi að góðum notum.

Share article:

facebookxmaillinkedin

More news

News overview
16 October 2026

Changes to interest rates on indexed loans

Breytilegir vextir verðtryggðra lána Frjálsa hækka úr 4,05% í 4,45% og tekur vaxtabreytingin gildi 15. nóvember nk.

Read more
15 October 2026

It is now possible to allocate private pension savings towards a housing loan

Applications have reopened for the tax-free allocation of supplementary pension savings under the general scheme. New legislation on the allocation of private pension savings toward housing loans took effect on 1 October 2026.

Read more
14 October 2026

Unpaid pension fund contributions for the year 2025

Frjálsi has now sent out payment requests and created claims in online banking for unpaid pension fund contributions for the year 2025. Pension fund contributions must be paid on all wage income/calculated remuneration, not just on base salary or primary employment.

Read more