29.05.2018
Tillaga stjórnar Frjálsa lífeyrissjóðsins til ályktunar á ársfundi
Á ársfundi Frjálsa lífeyrissjóðsins á morgun, 30. maí, mun stjórn sjóðsins leggja fram tillögu til ályktunar um að ársfundur feli stjórn sjóðsins að koma með tillögu til breytinga á samþykktum á næsta ársfundi eða aukaársfundi varðandi tilhögun rekstrarfyrirkomulags sjóðsins. Stjórn telur óþarfi að tilgreina í samþykktum sjóðsins hver rekstraraðili sjóðsins er með þeim hætti sem verið hefur. Aftur á móti er það skoðun stjórnar að hún eigi ekki að geta gert einhliða breytingar á rekstrarfyrirkomulagi eða vali á rekstraraðila án þess að leggja breytinguna fyrir sjóðfélaga til samþykktar. Stjórnin telur því rétt að gera neðangreindar breytingar á samþykktum til að þar endurspeglist þetta viðhorf.
Stjórn Frjálsa lífeyrissjóðsins leggur því til að ársfundur sjóðsins 30. maí nk. samþykki að fela stjórn að koma með tillögu til breytinga á samþykktum sjóðsins á næsta ársfundi eða aukaársfundi sem feli í sér að:
tilvísun til Arion banka sem rekstraraðila sjóðsins verði tekin út úr samþykktum,
sett verði inn heimild fyrir stjórn sjóðsins til að semja við ótilgreindan utankomandi aðila um daglegan rekstur sjóðsins, og
sett verði í samþykktir ákvæði um að breytingar sem stjórn hyggist gera á rekstrarfyrirkomulagi sjóðsins eða vali á rekstraraðila skuli bornar undir sjóðfélagafund til samþykktar og öðlist aðeins gildi hafi tillagan hlotið samþykki a.m.k. 2/3 hluta greiddra atkvæða líkt og gildir um samþykktarbreytingar.
Verði tillaga þessi samþykkt munu tillögur til breytinga á samþykktum verða auglýstar í samræmi við samþykktir sjóðsins til kynningar fyrir sjóðfélaga fyrir ársfund eða aukaársfund sjóðsins.
Tillaga þessi er gerð m.a. í ljósi þess að framlögð breytingartillaga sjóðfélaga á samþykktum sjóðsins felur það í sér, verði hún samþykkt, að stjórn sjóðsins mun geta einhliða gert breytingar á rekstrarfyrirkomulagi eða vali á rekstraraðila án þess að leggja breytinguna fyrir sjóðfélaga til samþykktar á ársfundi. Núverandi ákvæði greinar 4.9 um rekstraraðila felur í sér að stjórn getur ekki gert slíkar breytingar einhliða þar sem að aðkomu sjóðfélaga þarf á ársfundi til breytinga.