24.01.2013

Þróun markaða árið 2012

Skuldabréf og efnahagsmál

Gerðar voru fjórar breytingar á stýrivöxtum árið 2012, samanber þrjár breytingar árið á undan. Peningastefnunefnd Seðlabankans hækkaði vexti um 0,25 prósentustig í mars og voru vextirnir því komnir í 5%. Um miðjan maí hækkaði peningastefnunefndin vextina um 0,5 prósentustig, í 5,5%. Vextir voru svo hækkaðir um 0,25 prósentustig í júní og aftur í nóvember. Í árslok stóðu vextirnir því í 6% og höfðu verið hækkaðir alls um 1,25 prósentustig á árinu. Gengi krónunnar veiktist um 6,3% á síðasta ári en gengi krónunnar hóf að styrkjast á vormánuðum eftir að hafa veikst töluvert fyrstu þrjá mánuði ársins. Styrking krónunnar gekk svo snöggt tilbaka en krónan hóf að veikjast á nýjan leik í ágúst mánuði.

Verðbólga síðasta árs mældist 4,5% og reyndist það vera meiri verðbólga en markaðsaðilar áttu almennt von á. Verðbólgan náði hámarki í upphafi árs þegar 12 mánaða breytingin mældist yfir 6%. Þrátt fyrir háa verðbólgu í upphafi árs komu verðbólgumælingar í júlí og ágúst markaðsaðilum nokkuð á óvart en vísitalan lækkaði um 0,7% annars vegar og 0,2% hins vegar. Meðalvísitala neysluverðs árið 2012 var 5,2% hærri en meðalvísitalan 2011. Samsvarandi breyting var 4,0% árið 2011 og 5,4% árið 2010.

Ávöxtunarkrafa óverðtryggðra skuldabréfa hækkaði á árinu sem rekja má til veikingar krónunnar og mikillar verðbólgu í upphafi ársins. Um miðjan marsmánuð voru gjaldeyrishöftin hert með lagabreytingu sem fól í sér að ekki væri lengur heimilt að kaupa erlendan gjaldeyri fyrir andvirði verðbóta og/eða afborgana af höfuðstól skuldabréfa. Krafan á verðtryggðu bréfunum hækkaði í kjölfarið. Þróun á verðtryggðum ríkisskuldabréfum má sjá á myndinni hér að neðan ásamt ávöxtun bréfanna.

Innlend hlutabréf

Árið fór vel af stað, en fyrstu vikuna í maí hafði Úrvalsvísitalan hækkaði um 20% frá áramótum. Frá þeim tíma fór vísitalan lækkandi þar til hún tók kipp upp á við á ný, á síðustu vikum ársins. Þegar árið var liðið hafði vísitalan hækkað sem nam 16,5% frá áramótum.

Líkt og árið áður voru það bréf Icelandair Group sem hækkuðu mest allra á síðasta ári, eða um 63%. Bréf Haga hækkuðu næstmest á síðasta ári eða um 40%. Síðasta ár var fyrsta heila ár Haga í Kauphöllinni, en viðskipti hófust með bréf félagsins í desember árið áður eftir vel heppnað útboð. Aukið líf færðist í Kauphöllina á síðasta ári en þrjú félög voru skráð á markað. Viðskipti með bréf Regins hófust um mitt ár og eftir fremur rólega byrjun tóku bréfin að hækka og enduðu árið með 34% hækkun. Sjálft óskabarn þjóðarinnar, Eimskip, var aftur skráð í Kauphöll eftir endurskipulagningu og hófust viðskiptin með bréfin um miðjan nóvember. Um mánuði síðar hófust svo viðskipti með bréf Fjarskipta hf., betur þekkt sem Vodafone. Bréf Eimskips hækkuðu um 10,6% og bréf Fjarskipta um 3,3% á síðasta ári.
Búast má við frekari fjölgun skráðra félaga en allmörg félög hafa boðað komu sína í Kauphöll. Það má því leiða að því líkum að hlutfall innlendra hlutabréfa í eignasöfnum fagfjárfesta, þar með talið lífeyrissjóða, muni aukast á næstunni.

Erlend hlutabréf

Árið 2012 var viðburðaríkt á erlendum mörkuðum. Erfitt virðist vera fyrir stærstu hagkerfi heimsins að komast aftur á réttan kjöl eftir áföll og viðvarandi vandamál á fjármálamörkuðum. Hagvöxtur hefur almennt farið minnkandi um allan heim síðustu misserin og eru ýmsir þættir sem hafa áhrif þar á. Miklar opinberar skuldir ásamt óvissu í stefnu peningamála í Evrópu eru þó sennilega augljósustu vandamálin. Mörg ríki í Suður-Evrópu eru gríðarlega skuldsett og hefur það í einhverjum mæli leitt til fjármagnsflótta frá Suður-Evrópu til norðurs og jafnvel annarra heimsálfa. Þá er atvinnuleysi hátt á evrusvæðinu og vandséð hvernig hægt verður að ráð bót á því á næstu misserum.
Eitt helsta vandamálið í Bandaríkjunum er atvinnuleysi og lítill hagvöxtur en Seðlabanki Bandaríkjanna hefur ítrekað ráðist í aðgerðir til að örva hagkerfið sem felast í aukningu peningamagns í umferð og lækkun vaxta.

Heimsvísitala hlutabréfa (MSCI World Index) hækkaði um 13,2% á síðasta ári (18,2% í ISK) og hefur ekki hækkað meira síðan 2009. Örvunaraðgerðir helstu seðlabanka heims virðast hafa haft áhrif á fjárfesta og færslu þeirra yfir í áhættusamari fjárfestingar, þ.e. hlutabréf.

Share article:

facebookxmaillinkedin

More news

News overview
16 October 2026

Changes to interest rates on indexed loans

Breytilegir vextir verðtryggðra lána Frjálsa hækka úr 4,05% í 4,45% og tekur vaxtabreytingin gildi 15. nóvember nk.

Read more
15 October 2026

It is now possible to allocate private pension savings towards a housing loan

Applications have reopened for the tax-free allocation of supplementary pension savings under the general scheme. New legislation on the allocation of private pension savings toward housing loans took effect on 1 October 2026.

Read more
14 October 2026

Unpaid pension fund contributions for the year 2025

Frjálsi has now sent out payment requests and created claims in online banking for unpaid pension fund contributions for the year 2025. Pension fund contributions must be paid on all wage income/calculated remuneration, not just on base salary or primary employment.

Read more